Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
For our non Icelandic members.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Telemarkfestival 2010

Telemarkfestival 2010 fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9918

Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Smá stílbrot í annars fallegt ísklifursyfirbragð umræðusíðunnar: Púðurviðvaranir úr Hlíðafjalli leiða hugann að Telemarkfestivalinu 12.-14. mars nk. Hvernig væri að skrá sig, já og e.t.v. gera viðburðinn aðeins sýnilegan á hér á heimasíðunni?

Skúli

Re:Telemarkfestival 2010 fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9929

Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Telemarkfestivalið 2010 var mikið rætt í röðinni í Strýtulyftu um helgina. Það er komin spenningur í mannskapinn sem varð til þess að dagskrá helgarinnar er nú komin inn á dagskrá síðuna hér til vinstri...

Nýja heimasíðan okkar hefur ekki þann fídus að fólk setji inn athugasemd með skráningu á viðburð. Lausnin er því að hver og einn skrái sig sjálfur. Þeir sem ekki eru meðlimir í ÍSALP en ætla að vera með í hófinu skrá sig inn eins og þeir ætli að gerast meðlimir en setja Telemarkfestival í athugasemdadálkinn. Svo geta þeir skráð sig inn á dagskrársíðunni...
Kannski pínu flóknara en áður en vonandi lætur fólk það ekki aftra sér. Ef einhver á í vandræðum þá er velkomið að hafa samband við undirritaða.

p.s. það er loksins kominn ruglmikill snjór í Hlíðarfjall og er bara að sjá meiri snjó í kortunum! loksins.

p.p.s. smá stemmningsmynd frá síðasta Telemarkfestivali

telemark09_065_cropped_isalp.jpg
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek