Vantar Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9920
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Ég var að brjóta öxina mína við tilraunastarfsemi og ekki orð um það meir...
Til ykkar sem tollið í tízkunni, eigið þið ekki gamla Simond Naja í skápnum sem vantar nýtt heimili? Ég er ekki til í að borga mikið en lofa að brjóta hana ekki.
Re:Vantar Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9921
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Ég á handa þér fetilslausa Naju.
Þú þarft að sækjana sjálfur. -Liggur einhversstaðar á Argentiere jöklinum.
Þessar axir hafa þann eiginleika að vera fljótari niður en eigandinn...
Re:Vantar Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9931
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Hahaahaa... Brandarakeppni Ísalp er hér með hafin.
Skemmtilegur vinkill, því miður á ég engar Nöjur sem Rúnar getur sett á undarlega staði en slíkt hefði nú verð óskandi. Held ég.
En hvað varstu að gera þegar þú braust hana?
Mig grunar að þú hafir verið að bagsa við að beygja hana meira. Er það rétt??
Re:Vantar Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9934
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Tja.. ég var að endubæta tólið en það tókst ekki. Þrátt fyrir fagmenn í hverju rúmi. Nú er ný hugmynd komin upp. Vonandi get ég kynnt árangurinn á ísfestivalinu.
Re:Vantar ekki lengur Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9955
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Já sæll
Þú veist að Byko selur rosa fínt tape sem hægt er að nota til að bæta gripið ef það er sleipt. En það er ekki að spyrja að þessum ísfirðingum - þeir bjarga sér.
Re:Vantar ekki lengur Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9959
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Ég á eftir að setja hokkíteip. Fyrst ætla ég að reyna að létta skaftið aðeins. Handfangið var teiknað í AutoCad og vatnsskorið. Það er 3mm ryðfrítt stál í miðjunni og svo 9mm harðplast sitthvoru megin. Allt draslið kýlt 50mm upp í skaftið, Sikaflex og hnoð í gegn. Hlakka til að prófa.
Re:Vantar ekki lengur Simond Naja
fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan #9963
Skrifað fyrir 1 ári, 11 mánuðum síðan
Þetta er snild. Verður gaman að fylgjast með hvernig græjurnar virka. Fer bara ekki að verða grundvöllur fyrir því að senda allar bílskúrs og geymslu axir vestur í face lift.