Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Þarftu að losna við gamlar græjur eða ertu á höttunum eftir einhverju notuðu?
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda

Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 11 jan 2010 21:46 #9700

Skrifað 11 jan 2010 21:46
Ó, mig auman!
Er að verða búinn að spæna framtennurnar á Rambo broddunum mínum til ólífis.

Hef því áhuga á að kaupa par (eða tvö jafnvel) af einhverjum sem er með nýtt eða lítið notað slíkt stell liggjandi á glámbekk öngvum til gagns.

Held ég geti notað tennur af öllum Rambo broddum nema þessu nýjustu, Evo og Evo Comp (4. kynslóð Rambo). Er sjálfur með 1. kynslóð en veit til þess að menn hafi komið tönnum af millikynslóðunum (2. og 3.) á jálka eins og mína.

Sendið mér línu á hraundrangi(hjá)gmail.com ef áhugi er á slíkum viðskiptum.

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 11 jan 2010 23:52 #9701

Skrifað 11 jan 2010 23:52
Hey Siggi!
I can search if I find some in Italy/Austria/Swiss, maybe somebody still has some left.
I'll leave for Italy tomorrow.
Been training pretty hard and getting more experienced.
You can read it on my blog: lavinia-marianne.blogspot.com
And hey, you should ask Valdi for a climb, he's really good in drytooling!
Greetz,
Marianne

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 12 jan 2010 15:41 #9704

Skrifað 12 jan 2010 15:41
Er þetta ekki til í Útilíf í Glæsibæ?

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 12 jan 2010 16:07 #9705

Skrifað 12 jan 2010 16:07
Fór þangað um daginn og þeir áttu ekkert svona.
Áttu reyndar hliðartennurnar í Rambo og einhverjar framtennur í BD brodda minnir mig.

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 12 jan 2010 22:11 #9707

Skrifað 12 jan 2010 22:11
Ég var í Útilíf í glæsó fyrir nokkrum dögum og þá var búið að smekkfylla allar hillur af grivel dóti, náði að versla varahluti í báða broddana mína allavega :)

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 13 jan 2010 00:17 #9709

Skrifað 13 jan 2010 00:17
Hmm, athyglisvert. Ég var þarna um miðja síðustu viku og gaurinn sagðist ekki eiga von á neinu svona dóti á næstunni.

Hvað varstu annars að kaupa í broddana (og hvaða týpu af broddum)?

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 13 jan 2010 22:39 #9713

Skrifað 13 jan 2010 22:39
Annað hvort hef ég ekki leitað nógu vel um daginn eða Útilíf hefur bætt á hillurnar, því í dag fann ég tvö pör af Rambo tönnum og fjárfesti í öðrum þeirra á tæplega 4 kúlur.
Mæli með að menn sem vantar slík stell drífi í að kaupa því þetta er torfundið. Er búinn að vera að leita að þessu á netinu undanfarið. Kostar bæði slatta og fæst óvíða.

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 13 jan 2010 23:19 #9714

Skrifað 13 jan 2010 23:19
Ég var nú bara að ná í snjóvarnargúmmi og nýjar ólar í þá :)

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 14 jan 2010 09:12 #9717

Skrifað 14 jan 2010 09:12
Talandi um snjóvarnargúmmí, hvar gæti maður nælt sér í svoleiðis fyrir charlet moser (petzl) M10

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 14 jan 2010 09:37 #9718

Skrifað 14 jan 2010 09:37
Hringdi í Útilíf í gær og talaði við einhverja gelgju sem vissi ekki neitt, síðan einhvern gæja og svo annan gæja. Kom í ljós að það voru til einhverjir varahlutir í gömlu BD Switchblade broddana mína. Einnig eitthvað fyrir M10 brodda. Straujaði kortið og vona það besta. Býst samt alveg eins við að fá bleikar barnalúffur með póstinum.

rok
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Svar:Óska eftir framtönnum á Grivel Rambo brodda 15 jan 2010 08:53 #9723

Skrifað 15 jan 2010 08:53
Þú ert nú maður sem ætti ekki að vera í vandræðum með að koma bleikum barnalúffum í notkun.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.39 sek