Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Þarftu að losna við gamlar græjur eða ertu á höttunum eftir einhverju notuðu?
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Dauðvantar útstýr

Dauðvantar útstýr 21 nóv 2009 01:32 #9367

Skrifað 21 nóv 2009 01:32
Mig vantar allan útbúnað til ísklifurs og vetrarveru á fjöllum.

Þar ber fyrst að nefna ísaxir, mannbrodda, stífa skó og allan annan búnað sömu ættar.
Þá hef ég mikinn hug á að eignast fjallaskíði.

Fyrst íhugaði ég kaup á nýjum búnaði en sá fljótt að ég þyrfti að selja ömmu mína í brotajárn til að hafa ráð á slíku. Því leita ég á náðir félagsmanna sem eiga vanræktar græjur. Ég skoða hvað sem er.

Svar:Dauðvantar útstýr 21 nóv 2009 04:06 #9368

Skrifað 21 nóv 2009 04:06
Sæll Bjarni,
ég á 9 stk ísskrúfur sem er í fínu lagi, nokkrar þurfa smá bríningu en ekkert mikið!
Ég ætlaði að selja allt saman á ÍKR 31.500- eða 4.000- stk-ið. 7 16 sm og 2 stubbar. Blanda af BD Express (sem er ekki Turbo Express), Omega Pacific og Grivel (flestar BD).
Á líka gamla góða Charlet M M8 með mónótám, passa á bomsur með smelli að framan..ekki viss hvað ég vil selja það á?

Látu mig vita ef þú hefur áhuga Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða ef einhver annar hefur áhuga!

Svar:Dauðvantar útstýr 04 jan 2010 14:54 #9642

Skrifað 04 jan 2010 14:54
Sæll Bjarni

Ég á handa þér töluvert af búnaði til ísklifurs(ég var dæmdur úr leik eftir slys, ekki í ísklifri) s.s. petzl Nomic axir, petzl laser ísskúfur 2 stk. 13cm, 4 stk. 17cm og 1 laser sonic 21cm. slatta af tvistum og eitthvað fleira. hafðu samband ef þú hefur áhuga.

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 895 1995

Svar:Dauðvantar útstýr 04 jan 2010 21:58 #9648

Skrifað 04 jan 2010 21:58
Er með Petzl Corax klifurbelti stærð 2 lítið notað.
Fæst á hálfvirði.
Guðjón
8603115
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek