Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Þarftu að losna við gamlar græjur eða ertu á höttunum eftir einhverju notuðu?
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Eftir basarinn situr eftir...

Eftir basarinn situr eftir... 17 okt 2009 20:31 #9136

Skrifað 17 okt 2009 20:31
Ég er enn með Garmont Excursion telemarkskó nr. 41 sem þrá að komast á fjöll. Þeir líta alveg eins út og þessir og virðast svipað slitnir. Henta líka alveg ágætlega í kaldar eða blautar gönguskíðaferðir í stað leðurskóa.



Og tvö höfuðljós sem þurfa myrkur:

Svona

og

Svona, nema ekki díóðu.

Svar: Eftir basarinn situr eftir... 18 okt 2009 21:40 #9141

Skrifað 18 okt 2009 21:40
ég tók eftir því að það var mikið um telemarkgræjur til sölu á búnaðarbazarnum. eru telemarkarar að selja gamalt til að réttlæta kaup á nýju eða er telemark deyjandi sport?
bara velta þessu fyrir mér...

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 18 okt 2009 22:44 #9142

Skrifað 18 okt 2009 22:44
Langt frá því deyjandi sport... Bara gríðarleg þróun í gangi í þessu eins og á öðrum stöðum.

Sveiflan verður iðkuð sem aldrei fyrr nú í ár.

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 20 okt 2009 12:54 #9146

Skrifað 20 okt 2009 12:54
Einn telemark trailer þessu til staðfestingar !!

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 20 okt 2009 16:00 #9148

Skrifað 20 okt 2009 16:00
Ég tók eftir því sama og þú Sveinborg og varð smá stressuð. Where's the love fellow tele-tubbies?

Annars er ég mjög forvitin að vita hvaða heppni einstaklingur nældi sér í mega hott snowblades? Og ef, út af einhverri óskiljanlegri ástæðu þeir seldust EKKI, þá bíð ég sléttan þúsundkall í þá...

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 21 okt 2009 06:33 #9151

Skrifað 21 okt 2009 06:33
Á basarnum var ég að leita að tvennu en fann hvorugt: Telemark skó í 43 og bensínprímus. Anyone?
Gummi: 6921114

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 21 okt 2009 09:30 #9152

Skrifað 21 okt 2009 09:30
Komst því miður ekki á basarinn sem er skítt. Er að leita eftir fjallaskíðum á GÓÐUM díl og helst skinnum.

Hef lítið verið að skíða en langar að prófa meira. Er að hugsa um sirka 170cm, vil ekki hafa þau of stór en er sagt að þrátt fyrir að vera byrjandi þá sé ekki gott að hafa þau of lítil (er 183cm á hæð). Stefni á að setja Silveretta Easy Go 500 bindingar á fjalirnar. Svo þarf maður víst stafi með þessu líka er það ekki?

Ef einhver stereóplankarennslisiðkandinn er ekki lengur sáttur við flexið í skíðunum en heldur að það sé skítnóg fyrir fiktara eins og mig sem mun mest þramma uppá við og áfram (og vonast til að komast heill niður), má hinn sami vera í bandi.

Telemark....risaeðlur á skíðum? 21 okt 2009 11:16 #9153

Skrifað 21 okt 2009 11:16
Þetta myndband suck-ar feitt. Skil ekkert í því að BD skuli sjá sóma sinn í að festa logo-ið allann tímann við það. Sá ekki mikla framför þarna, ekkert nýtt síðan ég sá síðast Telemark video 1999 og var það töluvert öflugra en þetta.

Væri gaman að fá að vita hvaða framfarir væru í gangi í Telemarki? Ef það eru þá einhverjar. Nokkur ár eru síðan ég sá smá framfarir í bindingum og skóm á sýningu hjá einum framleiðanda en held það hafi ekki náð að ryðja sér rúms.

Eftir að hafa prófað töluvert hnébeygjurennslið að þá gafst ég endanlega upp á því, og skil ekki af hverju nokkur maður ætti að vilja leggja það á sig að beygja sig niður í hverri beygju? Fæst eitthvað meira útúr því? Skil vel pælinguna að vilja leysa hælinn á leiðinni upp, en nú (og hefur verið lengi) er það í boði fyrir þá sem vilja renna sér annað hvort fasta í hælinn eða á hlið.

kv.Himmi

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 21 okt 2009 13:18 #9155

Skrifað 21 okt 2009 13:18
Okei þessi trailer átti kannski ekki að sýna neina þróun á telemarkinu því það verður (vonandi) í grunninn alltaf eins (eins og að renna sér venjulega og til hliðar menningin)
Var heldur ekkert að tala um neitt breiktrough, en þessi þróun sem ég var að pæla í er sú að dýrasta project sem BD hefur ráðist í og tók 3 ár var að hanna skó sem komu út í fyrra. 3 pör af AT skóm og 6 pör af tele skóm. Hef svosem ekki prófað neitt af þessu, en allt sem ég hef lesið og heyrt er bara hrikalega jákvætt.

NTN bindingarnar sem þú ert eflaust að tala um þurftu auðvitað spes skó sem hefur bara verið bundið við eina skó tegund að ég held. Nú eru 3 af 4 skóframleiðendum byrjaðir að bjóða upp á NTN skó (Scarpa, Garmont, Crispi)

Þessi umræða um að þurfa að beygja sig niður í hverri beygju á alveg eins mikið rétt á sér eins og að þurfa að príla hærri gráðu leiðir í spotta ef þú kemst upp með lægri gráðu leið... jafnvel án spotta :)
Bara spurning um metnað held ég :)

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 21 okt 2009 14:02 #9156

Skrifað 21 okt 2009 14:02
Já ok, er þá ekki málið að sýna smá metnað og renna sér með blýbelti?

:)

Svar:Eftir basarinn situr eftir... 21 okt 2009 14:10 #9157

Skrifað 21 okt 2009 14:10
Annars hefði ég frekar lagt metnað í að fara erfiðari og flottari línur en að gera mér eitthvað erfitt fyrir með einhverjum extra líkamsæfingum. Fínt að gera telemarkbeygjur bara í ræktinni.

En ég reyndar verð að taka undir það með stelpunum að mér finnst fleiri og fleiri af mínum rennslisfélögum vera farnir að fjallaskíða og taka telemarkið síðan með til að fara eitt gó á festivalinu...

Og náttúrulega brjáluð sókn í fjallaskíðunum.

Svar:Telemark....risaeðlur á skíðum? 21 okt 2009 17:08 #9159

Skrifað 21 okt 2009 17:08
Hilmar Ingimundarson wrote:
....Væri gaman að fá að vita hvaða framfarir væru í gangi í Telemarki? Ef það eru þá einhverjar... kv.Himmi[/quote]

Himmi, -þelamerkursveiflan er eins og kynlíf og hefur því ekkert breyst í þúsundir ára og kemur ekki til með að breytast.

Þú verður að passa þig á að festast ekki í einhverju hjakki um hjálpartæki á borð við stinnari skó... og öruggt **********
-Annars er alltaf gaman að horfa á blár skíðamyndir.........
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek