Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Þarftu að losna við gamlar græjur eða ertu á höttunum eftir einhverju notuðu?
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: fjallaskíðadót

fjallaskíðadót 29 des 2008 20:40 #7758

Skrifað 29 des 2008 20:40
Vantar fjallaskíði, bindingar, skinn og skó (43-44). Þarf ekki að vera í toppstandi. Til í viðræðu um sanngjarna prísa. Hallgrímur Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

svar: fjallaskíðadót 09 jan 2009 10:46 #7759

Skrifað 09 jan 2009 10:46
Gleðilegt árið!

Þú hefur væntanlega fengið sömu auglýsingu og ég. Svo hinir sjái hann líka þá fylgir hún hér:

Skíðadeild Víkings stendur fyrir skíðamarkaði með notaðan skíðabúnað í félagsheimili Víkings Traðarlandi 1 sunnudaginn 11 janúar 2009 kl 13:00 til 16:00.

Öllum gefst kostur á að selja og kaupa allan skíðabúnaður (svig, göngu , telemark, fjallaskíði & bretti), skíðafatnaður, og skauta. Búnaður þarf að vera í þokkalegu standi.

Tekið er á móti vörum kl 9:00 til 12:00.á sunnudeginum. Vinsamlegast hafið búnað og fatnað þrifalegann. Ráðleggingar um verðlagningu á staðnum. Skíðadeildin tekur 20% söluþóknun og sér alfarið um framkvæmd. Boðið verður upp á að brýna kanta og bera rennslisáburð á skíði ef óskað er fyrir 700 krónur.

Þeir sem koma með búnað til sölu á markaðnum eiga að nálgast búnað sem ekki selst milli kl 16:00 og 17:00 á sunnudeginum.

Hægt verður að greiða með greiðslukortum. Uppgjör á seldum búnaði verður 4 febrúar þegar uppgjör kortafyrirtækja verður komið.

Kökubasar og heitt á könnunni.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek