Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Þarftu að losna við gamlar græjur eða ertu á höttunum eftir einhverju notuðu?
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast

Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 12 nóv 2007 14:34 #5723

Skrifað 12 nóv 2007 14:34
Hvernig væri að láta vita af því hvað þið hyggist koma með á búnaðarbazarinn á þessum þræði?

Ef þið eruð að leita af einhverju ákveðnu látið þá líka vita hér.

Ekkert möst að pósta hér en gæti einfaldað málin.
Sjáumst á fimmtudagskvöld.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 08:09 #5724

Skrifað 13 nóv 2007 08:09
Ég skoða vandlega klifurbrodda ef þeir verða í boði. Fjallaskíðabúnaður kemur einnig til greina.
B

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 09:29 #5725

Skrifað 13 nóv 2007 09:29
á svona skó www.everest.is/images/gongusk/v860.jpg til sölu. Hafa verið notaðir einu sinni, nr. 37.

Líka eitthvað af eldgömlum ísöxum, en þær ættu kannski frekar að fara á safn.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 10:45 #5726

Skrifað 13 nóv 2007 10:45
hhm. man ekki hver það var en einhver nefndi að hann ætti klifurbrodda sem voru of litlir... í small, ónotaðir. vonandi mætir sá hinn sami.

einnig veit ég að ónefnd ferðaskrifstofa ætlar að selja tjöld af sínum lager.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 10:53 #5727

Skrifað 13 nóv 2007 10:53
Mæti með gamla Scarpa Vega plastskó í stærð 46.

kv. Ági

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 13:28 #5728

Skrifað 13 nóv 2007 13:28
Fjallaleiðsögumenn munu vera með gommu af notuðum North Face VE-25 tjöld til sölu. Prísinn þeim verður frá 10.000 kr og fer eftir ástandi þeirra.

Einnig verðum við með 1 stykki Land Rover við viljum selja, hann er af gerðini Defender og er árgerð ´99. Gripurinn mun fara á rúma milljón.

kv. Doddi

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 13:52 #5729

Skrifað 13 nóv 2007 13:52
Ég á víst 2 pör af öxum og 3 parið er á leiðinni svo að ég verð nú að fara að losna við eitthvað að þessu.. svo að ég er að spá í að selja annað parið, þó er ég ekki alveg búin að ákveða hvort parið ég læt af hendi. Enn þetta eru annars vegar BD rage axir með freelock fetlum frá petzl, hafa einungis séð 2 vetra en eru ágætlega notaðar en í toppstandi (góðar alhliða axir) og hins vegar BD Viper axir fetla lausar með viperfang, sem eru frekar lítið notaðar og hafa séð ekki mikin ís. þó er ég að hallast meira að selja viperinn þar sem ég er að fá svipaðar axir en læt hinar af hendi ef vel er boðið.

bd rage:
www.outdoorreview.com/cat/outdoor-equipment/climbing-mountaineering/ice-tools/black-diamond/PRD_80278_2970crx.aspx
freelock:
en.petzl.com/petzl/SportProduits?Produit=434
bd Viper með fang:
www.telemark-pyrenees.com/shop/images/z_BD-Viper%20Hammer&Adze-2006TH.jpg

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 16:22 #5730

Skrifað 13 nóv 2007 16:22
Og hver verður prísinn á öxunum?

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 17:17 #5731

Skrifað 13 nóv 2007 17:17
Fjallaskíðaskinn og ísaxir eru ofarlega á óskalistanum.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 22:36 #5732

Skrifað 13 nóv 2007 22:36
Arnar, þrenn pör af öxum????

Sá þig nú í klifurhúsinu áðan, er ekki málið að selja tvö af þremur og fá sér þrekhjól í staðinn! :)

Kveðja,
Gulli

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 13 nóv 2007 23:31 #5733

Skrifað 13 nóv 2007 23:31
Er með par af BD Prophet öxum m. locdown fetlum og Charlet Mozer monopoint brodda.

Fer fyrir gott verð.

Verð þó ekki á svæðinu á fimmtudaginn.

Áhugasamir geta haft samband í 821 3254.

Kv.
Böbbi

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 00:34 #5734

Skrifað 14 nóv 2007 00:34
Var að spá hvaða litur væri á þessum Scarpa Vega skóm. Fjólubláir (bleikir) er náttúrulega toppurinn.

Kv. Árni Alf.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 09:28 #5735

Skrifað 14 nóv 2007 09:28
hehe.. Já Gulli, svona er samúðaróléttan.. en Viper axirnar kosta hvað... 28 þús stk nýjar.. held að það væri nú meira en sanngjarnt verð að fá 30 þús fyrir parið Ágúst.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 10:20 #5736

Skrifað 14 nóv 2007 10:20
Scarpa Vega Plastskórnir eru fjólubláir. Ofurtöff og með nýjum reimum. Hefurðu áhuga Árni?
Þeir fara á 4000 kall.

Ágúst

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 10:41 #5737

Skrifað 14 nóv 2007 10:41
Ef ég man rétt Árni neyddist þú til að skipta um reimar í þínum líka í vor. En það væri nú ekki slæmt að eiga aukapar svona í varahluti...;)

Smári

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 11:48 #5738

Skrifað 14 nóv 2007 11:48
Ég mæti allavegana með nælonskinn (minnir að þau heiti Pomaz) sem eru 60 mm á breidd. Algerlega ónotuð...

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 13:27 #5739

Skrifað 14 nóv 2007 13:27
Ég verð þarna með bivak og aldrei-notaða Scarpa skíðagönguskó nr. 45 að mig minnir, leður.

Stefán

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 13:48 #5740

Skrifað 14 nóv 2007 13:48
Það er vonandi að þetta verði hin besta "dótabúð" á morgun. Mig vantar einmitt brodda og gönguexi.

Sigurður

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 15:54 #5741

Skrifað 14 nóv 2007 15:54
Ég mæti með Grivel (Eagle?) gönguöxi, nánast ónotaða Scarpa T2 telemarkskó nr. 40 minnir mig. Og kannski eitthvað fleira.

Vantar cheapo frauðdýnu í niðurrif.

Boðaði líka haug af kaupglöðum nýliðum Flugbjörgunarsveitarinnar á staðinn. Fást gegn vægu verði.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 16:02 #5742

Skrifað 14 nóv 2007 16:02
Ég á snjóbretti í fínu lægi ef einhverjum langar í. 168 cm á hæð
5000 kr kemst ekki á morgun en síminn hjá mér er 8470787.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 17:57 #5743

Skrifað 14 nóv 2007 17:57
Já Ágúst hef mikinn áhuga á að næla mér í þessa skó. Smellpassa vonandi. Ekki er verra að það séu nýjar reimar til að halda þeim saman.

Kv. Árni Alf.

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 14 nóv 2007 19:14 #5744

Skrifað 14 nóv 2007 19:14
Head 720 brettaskó hafa verið notaðir í tvígang

svar: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast 16 nóv 2007 13:47 #5745

Skrifað 16 nóv 2007 13:47
Góður basar, en Telemarkskórnir eru enn óseldir.

Scarpa T1 lítið notaðir, of litlir á mig. Nr. ca. 40-41

10.995 eða tilboð.

kv. Steinar Sig.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.53 sek