Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Þarftu að losna við gamlar græjur eða ertu á höttunum eftir einhverju notuðu?
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Lausir steinar í Valshamri

Lausir steinar í Valshamri 21 ágú 2011 21:28 #12098

Skrifað 21 ágú 2011 21:28
Þegar hefur verið umræða um lausa steina í Valsamri en þar sem ég rak mig á frekar marga í dag þá langar mig að impra aðeins á þessu aftur.

Steinarnir fjórir eru:
- Flaga frekar ofarlega í Skorunni
- Flaga á milli bolta eitt og tvö í Eilífi
- Tveir stórir steinar, hlið við hlið, ofarlega í Eilífi

Mér finnst þetta allt frekar stórir steinar og ef einhver þeirra skyldi losna er spurning hvað verður um sumarbústina fyrir neðan...Því er spurning um að vera á undan náttúrunni og reyna að stýra falli þessara steina og líklegast best að gera það í samstarfi við landeiganda.

Ég mun skoða þetta með stjórninni hvað hreinsun varðar en vildi í þetta skiptið bara vekja athygli á öllum þessu lausu steinum. Þetta er ansi frábrugðið því sem maður er vanur í Valshamri og því allur varinn góður þegar menn klípa í klettana þarna... því kannski eru fleiri lausir...

Eru einhverjir reyndir "steinalosarar" sem væru tilkippilegir í verkið?

Re: Lausir steinar í Valshamri 22 ágú 2011 20:09 #12105

Skrifað 22 ágú 2011 20:09
Er það staðreynd að nauðsynlegt sé að fara í svona miklar aðgerðir? Hvað segja þeir sem hafa verið að klifra þarna síðan áður en ég fermdist? Finnst að menn ættu að stíga mjög varlega til jarðar í þessu.

Re: Lausir steinar í Valshamri 23 ágú 2011 11:00 #12109

Skrifað 23 ágú 2011 11:00
Ég verð að furða mig á umræðunni um lausa steina í Valshamri. Ekki vegna þess að lausir seinar séu hættulausir, þvert á móti, heldur vegna þess að ég hef ekki orðið var við slíkt. Til að mynda hef ég klifrað í Valshamri tvisvar í sumar, Eilíf 10 sinnum í hvort skipti, án þess að finna annað en ég hefði fast land undir fótum (sem og höndum). Að mínu viti sé boltalínunni fylgt ættu klifrarar ekki að rekast á lausa steina.

Re: Lausir steinar í Valshamri 24 ágú 2011 21:25 #12111

Skrifað 24 ágú 2011 21:25
Já... spurning hversu stórt mál þetta er og er ég ekki sá reyndasti í þessum efnum og hugsanlega ofmat hjá mér...

Síðast þegar ég klifraði í Valhamri, sem þó var í byrjun sumars, þá leit ég þetta sömu augum og þið segið, þ.e. fannst þetta ekkert til að tala um...

Aftur á móti brá mér svolítið þegar ég mætti til klifurs um helgina þar sem að allt í einu fannst mér steinarnir miklu lausari en áður. Eins og þeir hafi losnað enn meira og jafnvel spurning hvort það sé jafnvel nýskeð.

Það þurfa greinilega fleiri að hafa skoðun á þessu áður en nokkuð er ákveðið. Mín upplifun var allavega þessi.

P.S. lausu steinarnir uppi í Eilífi eru út af leið en flagan neðst niðri er, ef hún er laus, í leiðinni nema klifruð sé upp skoran.

P.P.S. ég velti fyrir mér hvort það sé líka laus flaga í Blómálfum en það er hugsanlega vitleysa.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.19 sek