gulli

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 76 through 100 (of 105 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Klifur í sumar. Vídjó #54598
    gulli
    Participant

    Siggi klifrar svo rólega og yfirvegað að maður fær engan fiðring heldur finnur bara fyrir syfju. Það var aðeins fyrir goluna og að maður sá bolinn aðeins blakta að ég steinsofnaði ekki yfir þessu.

    En hvernig er með þennan ís. Í fyrra var maður búinn að komast eina ferð í Múlafjall á þessum tíma …

    in reply to: Bakpokar #54518
    gulli
    Participant

    Sælir …

    Maður verður auðvitað að eiga amk 4 bakpoka til að geta gert hlutina almennilega :) … einn fyrir allt gengur auðvitað ekki upp.

    Ég er að nota svona:
    http://www.travelcountry.com/shop/north-face/expedition-technical-backpacks/north-face-spire-38-back

    38 lítra, Siggi Tópó sagði að það væri of lítið og ég myndi sjá eftir því en það er kjaftæði, fín stærð nema ef maður tekur myndavélina með og vill troða henni í pokann.

    Hann er léttur, góðar axarfestingar (blöðin renna inn í pokann), hækkanlegt topphólf sem hægt er að taka af setja í pokann þegar allur gírinn er farinn úr og poki fyrir vatn.

    Eina sem ég vildi bæta við hann væru stærri smellur (erfitt að eiga við litlar þegar manni er skítkalt) og broddafesting utan á. Kannski hægt að vera með betra bak system svo maður svitni minna.

    Það er alltaf gaman að pæla í þyngd, Gadd segir að allt yfir 3 lbs. fyrir ísklifur sé algert bull. Tékkaðu á þessu:
    http://www.prolitegear.com/site/xdpy/ssg/Backpacks/Packs:%20Med.%20Volume.html

    in reply to: Ég er að leita mér að ísklifur skóm. #54445
    gulli
    Participant

    Hvernig skóm ertu í núna og síðan hvenær eru þeir? ;)

    in reply to: Svarti turninn í Búahömrum #54372
    gulli
    Participant

    Guðmundur Freyr Jónsson wrote:

    Quote:
    Já varst þú þarna líka í gærkvöldi Freysi, en við vorum 4 félagar þarna á ferð, Ég, Óðinn, Kári og Óli. Myndir koma síðar þar sem ég er tölvulaus til myndvinnslu sem stendur. Frábær leið, miklu skemmtilegri en ég átti von á og þið eruð algjörir heiðursmenn fyrir að setja þetta svona vel upp og græjja fyrir okkur hina, takk kærlega fyrir okkur.

    Get kannski gefið smá teaser af myndum, en hér er mynd af öðrum “leiðarverðinum”: http://www.flickr.com/photos/gummistori/3733679630/
    hendi inn klifurmyndum í vikunni, skal láta ykkur vita.

    kv. Gummi St.

    Þessi mynd af “leiðarverðinum” er alveg einstök, ótrúlega flott augnablik sem þú fangaðir þarna.

    in reply to: Svarti turninn í Búahömrum #54338
    gulli
    Participant

    Hæ, ég og Óli Hrafn skelltum okkur í Svarta Turninn í blíðunni. Hin besta skemmtun, takk fyrir að hafa sett þessa leið upp strákar.

    Mjög sáttur við gráðurnar og vel boltað … fyrsta spönnin alveg boltuð í hönk, hefði kannski verið meira gaman að sleppa 2-3 svona til að auka enn meira á gleðina … :)

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Suður Frakkland – klettaklifur #54304
    gulli
    Participant

    Hæ, takk allir. Er með gistingu í Marseille þannig að er helst að leita eftir einhverju nálægt sem maður myndi nenna að keyra í daglega.

    Ætli málið sé ekki að útvega sér tópó af þessu calanques svæði.

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Stardalsdagurinn 17. júní #54248
    gulli
    Participant

    Eru rær ekki einmitt forverar hnetna?

    Sem heita hnetur vegna þess að þetta þýðist svo skemmtilega úr ensku en á í raun ekkert skylt við hnetur eins og flestir þekkja þær, umvafðar súkkulaði og karamellu inní brúnu pappabréfi sem á stendur Snickers.

    in reply to: Sick forsidumynd i bodi Sigga #54240
    gulli
    Participant

    Já, það eru nokkrar flottar nýjar komnar í gagnagrunninn. Og einhverjar gamlar sem ekki hafa sést lengi sem munu dúkka upp líka.

    Flestar þessar nýju eru í boði Sigga Tomma. Auglýsi hér með eftur fleiri myndum frá félagsmönnum. Þær eiga að vera 800 pixlar á breidd en mest 400 pixlar á hæð.

    Sendið endilega myndir sem þið teljið að færu vel á forsíðu Ísalp á vefur@isalp.is.

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Til lukku með nýjan vef!!!! #54238
    gulli
    Participant

    Smári Stefánsson wrote:

    Quote:
    Kominn inn á mitt hiemasvæði, virkar að eyða kökum og history.

    Í sambandi við community, er það sambærilegt mínum síðum á gömlu síðunni?
    kemst ekki inn á þetta..

    kv. Smári

    Hæ, í rauninni ekki. Mínar síðar koma undir greinar, bæði á forsíðu og svo undir prófílum notenda.

    Kv,
    Gulli

    in reply to: Sjáið þetta!!! #54229
    gulli
    Participant

    Já, youtube tengingin virkar fínt … spurning um að kíkja á þetta:

    in reply to: Til lukku með nýjan vef!!!! #54228
    gulli
    Participant

    Hæ …

    Gott að heyra að menn eru ánægðir með þetta enn sem komið er. Þetta er búið að taka óendanlega langan tíma og orðið mjög langt síðan maður tók 40 tíma vinnutörn eins og um síðustu helgi.

    Okkur Óla Hrafni langar að þakka Arnari J. fyrir hönnunina á útlitinu og Þórhalli Helgasyni fyrir að hafa CSS-að fyrir okkur. Ófáir tímar sem fóru í það.

    Einnig Helga Borg sem á mikinn heiður skilinn fyrir hönnunina á gamla vefnum og alla þá vinnu sem hann hefur lagt í þetta á síðustu 10 árum eða svo. Helgi var í alla staði fagmannlegur við að afhenda okkur gögn og færa lénaskráninguna

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Páskaklifur í grennd við Borgarnes #54093
    gulli
    Participant

    Góður Palli … hérna er mynd sem ég tók 2 dögum áður:

    http://grettisgata.eitthvad.is/main.php?g2_itemId=36054

    Stemmir þetta við sjónarhornið úr sófanum?

    in reply to: Hlýtt tjald #53946
    gulli
    Participant

    Stríði nú ekki við þetta vandamál, er alltaf sjóðandi heitur ;)

    En hef heyrt að þetta dót sé alveg málið ef maður tímir aurunum í þetta:

    http://www.exped.com/exped/web/exped_homepage.nsf/b43HomePageE?openframeset

    Kv,
    Gulli

    in reply to: Ný leið í Eilífsdal, Ópið #53898
    gulli
    Participant

    Sjííííís, þessar myndir eru of flottar! Glæsilegt!!!!!

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Tvibbagilið #53720
    gulli
    Participant

    Já, gaman að þú minnist á jakkann hans Robba. Ég er nokkuð viss um að þetta er lánsjakki sem er sérstaklega fenginn með þegar fær ljósmyndari er á svæðinu ….

    Róbert er nýjasta skilgreiningin á glory hunter … :)

    in reply to: Klifur, sig og aðrir fimleikar #53622
    gulli
    Participant

    Góð grein, held að allir ættu að gefa sér tíma og renna yfir hana.

    Kv,
    Gulli

    in reply to: Trekant í Tríó #53492
    gulli
    Participant

    Já, þetta var frábær dagur í góðu veðri og skemmtilegar leiðir.

    Ætlaði að taka haug af myndum en myndavélin bilaði. Kom einhver skrýtin villa þegar maður reyndi að taka mynd “No CF Card”. Verð líklega að henda henni í Beco í viðgerð.

    Kv,
    Gulli

    in reply to: Jólajóla! #53355
    gulli
    Participant

    Hvenær er mæting eiginlega????

    in reply to: Grafarfoss #53295
    gulli
    Participant

    Klárlega klassík :)

    Nokkrar myndir, http://grettisgata.eitthvad.is/main.php?g2_itemId=33822

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Hetjudáðirnar framundan #53213
    gulli
    Participant

    Já, Ívar er klárlega okkar Chuck Norris. Þetta gæti verið gaman …

    Þessi:
    Chuck Norris invented black. In fact, he invented the entire spectrum of visible light. Except pink. Tom Cruise invented pink.

    Yrði þá:
    Ívar Hardcore fann upp svartan. Í rauninni þá fann hann upp allt litasviðið. Nema bleikan. Björk Hauksdóttir fann upp bleikan.

    in reply to: Ljósmynd frá Veiðivötnum #53167
    gulli
    Participant

    Vá, til hamingju með þessa Gummi, verulega flott. Miklu betri en aðrar panó sem ég hef séð frá þér.

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Slys í munkanum #53078
    gulli
    Participant

    Já, gott að ekki fór verr. Við bara sjáumst á ísfestivalinu Smári!!!

    in reply to: Klifurmaraþon #52931
    gulli
    Participant

    Já, takk fyrir mig, þetta var frábært. Veðrið, klifrið og stemmingin allt alveg frábært. Og þetta lambalæris framtak var alger snilld, sjaldan bragðað betri mat.

    E-r myndir frá helginni hér:

    http://grettisgata.eitthvad.is/main.php?g2_itemId=3920

    Kveðja,
    Gullz

    in reply to: Afrek helgarinnar? #52258
    gulli
    Participant

    Frábær dagur í gær … ekki nógu sprækur til að vinna allar myndir í gærkvöldi en hér er smá “teaser”:

    http://grettisgata.eitthvad.is/myrarhyrna2008

    Kv,
    Gulli

    in reply to: Ap #52212
    gulli
    Participant

    Já, Rock & Ice og Climbing bara seldust ekki. En ef þetta gengur þokkalega þá lofa ég að koma þeim aftur í hillurnar.

    Kv,
    Gulli

Viewing 25 posts - 76 through 100 (of 105 total)