2704735479

Forum Replies Created

Viewing 22 posts - 26 through 47 (of 47 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Nokkrar staðreyndir … #51960
    2704735479
    Member

    Mér finnst það hljóma mjög skynsamlega.

    kristín martha

    in reply to: ISALP og Klifurhúspartý #51946
    2704735479
    Member

    hei já, það var fjör á laugardaginn! við ætlum að prófa að leyfa tökunum að vera á veggjunum fram að jólum og hafa opið fyrir axir milli klukkan 21:30 og 22:30/23 á miðvikudagskvöldum. -alla vega sjá hvernig það gengur.

    in reply to: King Lines #51844
    2704735479
    Member

    þokkalega ; )

    in reply to: Kynningarkvöldið #51686
    2704735479
    Member

    Glæsilegt ársrit. Til hamingju!

    in reply to: FitzRoy #51567
    2704735479
    Member

    úúú -hvað með Bishop, eruð þið búin að kíkja þangað?

    : ) : ) : )

    in reply to: Klifurglens #51548
    2704735479
    Member

    hehe -er einhver búinn að prófa?

    ; )

    in reply to: Skaftá í Langasjó – ekkert kjaftæði #51478
    2704735479
    Member

    Hjartanlega sammála. Það eru mjög fáir sem þora eða nenna að taka afstöðu til þessara mála og þess vegna þarf upplýsandi HÁVAÐA úr öllum áttum.

    in reply to: Nýr leiðarvísir fyrir Stardal #51397
    2704735479
    Member

    mjög flott!

    in reply to: Klifurhúsið til fyrirmyndar #51359
    2704735479
    Member

    …okkar er ánægjan

    : )

    in reply to: Undrabarnið Robertino #51313
    2704735479
    Member

    Til hamingju með það. Anabolica er mjög flott leið. Róbert er núna áttundi Íslendingurinn til þess að rauðpunkta 8a.

    Fyrr á þessu klifurári rauðpunktuðu Elmar Orri, Hjalti Andrés, Kristján Þór og Kjartan Björn 8a leiðir. Stórglæsilegur árangur hjá þeim öllum.

    Klifurhúsið skorar á Róbert að mæta á lokamótið þann 15. apríl og óskar honum um leið til hamingju.

    in reply to: Steve House #51242
    2704735479
    Member

    þetta var ótrúlega flott myndasýning. takk fyrir hana.

    in reply to: klifurferð til Ítalíu #51149
    2704735479
    Member

    Flottar myndir. Takk fyrir ábendingarnar, alltaf gott á fá nýjar veggjahugmyndir.

    StínaMartha

    in reply to: Er ekki komið nóg? #50345
    2704735479
    Member

    Um vöxt áliðnaðar á Ísland (heimild: KB-banki)

    Þjóðhagslegur ábati stóriðjunnar er því einkum fólgin í því yfirverði sem álver greiða til íslenskra framleiðsluþátta, einkum vinnuafls og orku. Þar skiptir arður af sölu raforku mestu máli. Sú stefna virðist hafa verið ríkjandi hérlendis að selja raforku nærri kostnaðarverði sem endurspeglast bæði í fremur lágri arðsemi Landsvirkjunar og fremur lágrar ávöxtunarkröfu sem fyrirtækið gerir til virkjanaframkvæmda…

    Virðisauki % af heildartekjum
    Ál 1 t 24,0%
    Þorskur 1 t 80,0%
    Ýsa 1 t 78,0%
    Karfi 1 t 73,0%
    ferðamaður 62,0%

    Áætlað er að um 450 störf skapist við álverið í Reyðarfirði eða að einn starfsmaður sé á hver 700 framleidd tonn og má áætla að um 700 störf skapist í Norðuráli og Reyðarfirði miðað við áætlaða framleiðsluaukningu. Auk þess skapast örfá störf við
    virkjanir en reiknað er með að 10 til 20 manns muni starfa við Kárahnjúkavirkjun þegar að framkvæmdum er lokið og má því gera ráð fyrir að fjölgun starfa verði alls um 750 sem jafngildir atvinnusköpun af 40 þúsund ferðamönnum…

    Viltu vita meira:
    http://www.kbbanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=4404

    in reply to: Hrútfjallstindar – myndasaga #49781
    2704735479
    Member

    Jó. Kíktu yfir þetta. Þetta er fín yfirlitsgrein sem skýrir hugtakið “gróðurhúsaáhrif” og tekur á rýrnun jökla hér á landi.

    http://www.vedur.is/starfsmenn/tj/greinar/vedurfarsbreytingar_umhvrn_2000.pdf

    Síðan þessi greinargerð kom út held ég að niðurstöður mælinga bendi til að hlýnun á norðurhveli muni gerast hraðar en menn komust að í skýrslunni.

    Svo hitt. Hefurðu reiknað út hversu miklu minni mengun á heimsvísu færsla 5 álvera til íslands hefur í för með sér? Ég þekki nefnilega fólk sem hefur gert það eftir bestu getu og ekki komist að alveg sömu niðurstöðu og þú. Þeir útreikningar benda til þess að 5 álver skipti ekki miklu máli varðandi mengun á heimsvísu. Kannski þyrftum við að reisa 50 álver til þess að við gætum farið að tala um að við séum mælanlega að stuðla að minni mengun á heimsvísu?

    in reply to: Myndasýning #49663
    2704735479
    Member

    Þess má geta að einnig verða sýndar myndir frá Norðurlandamótinu í leiðsluklifri 2005 og grjótglímum í Bjarnarfirði, eins og kemur fram á vefsíðu KLIFURHÚSSINS.

    in reply to: Tímarit #49159
    2704735479
    Member

    jú, ekki spurning. ísalp er enn áskrifandi af einhverjum bandarískum (minnir rock and ice) og einhverjum breskum (held bara high mountain). það er bara spurning um hvenær blöðin mega laumast niður á neðri hæðina svo allir geti lesið. hvað segir ísalp? og klifurhúsið gæti örugglega keypt eitt eða tvö blöð í viðbót.

    in reply to: Útgerð á kostnað áhugamanna #49126
    2704735479
    Member

    Ótrúlegt hvað margir geta tjáð sig um hnappavelli sem aldrei koma þangað. það er auðvelt að tala um góða umgengni og það sé allt í lagi að auglýsa staðinn þegar fólk mætir bara einu sinni (eða sjaldnar!) á sumri og fer fyrst heim. Ég held að ég viti ágætlega hverjir hafa verið á Hnappavöllum síðustu sumur -og að Hjalta og Hrappi undanskildum þá eru það EKKI þeir sem eru að skrifa á þessum umræðuþræði. Málið snýst ekki um peninga heldur umgengni. Ég held að íslenskir fjallaleiðsögumenn gangi bara mjög vel um eftir sig. Mér hefur ekki sýnst betur. EN það vill enginn auglýsa staðinn upp. Og allra síst að hann sé auglýst söluvara. Jesús, ég er fegin að Ívar er hættur að klifra í klettum!

    in reply to: Hvernig má bæta vefinn? #49092
    2704735479
    Member

    ………..er ekki Hrappur örugglega með í ráðum varðandi net-leiðarvísa?

    eins og Helgi Borg orðar það þá er víst óþarfi að finna mörgum sinnum upp hjólið.

    in reply to: Hvernig má bæta vefinn? #49087
    2704735479
    Member

    Meira af berum stelpum!

    in reply to: Afrakstur sumarsins #48938
    2704735479
    Member

    séð frá mínu tjaldi á hnappavöllum (þar sem enn er sumar):
    talsvert af nýju fólki var að klifra í sumar. nokkrir kíktu oftar en einu sinni. palli halldórsson mætti oft og tók hina og þessa með sér, það voru tvær stelpur sem mættu oftar en einu sinni og tveir fimleikastrákar úr hafnafirði. robbi kom og klifraði fullt af leiðum (frétti að hann hefði flassað eða onsædað eitthvað erfitt í vatnsdal), benjamin þýski klifraði fullt með kjartani, og svo örugglega miklu fleiri.

    hmmmmmmmmm kjartan klifraði leikið á alls oddi (5.12a), valdi og hjalti endurtóku hamskiptin hans hrapps (7c?), valdi fór sláturhúsið (8a) aftur (og hengdi tvistana upp í leiðinni), bjössi boltaði nýja leið sem ég man ekki hvað heitir en er víst eitthvað um 5.11d og stebbi endurtók hana.

    stebbi, bjössi og hjalti skiptu út slatta af álaugum og græjuðu sigankeri í margar gamlar leiðir. stebbi og bjössi endurboltuðu leikið á alls oddi……

    …svo var náttúrlega byrjað að búldera í Bjarnarfirði á Ströndum. það er ekkert smá fínt.

    hmmm var þetta ekki smá slúður?

    já og svo skandall sumarsins: stebbi var að eignast þriðja barnið!

    in reply to: Valshamar – ný leið #48797
    2704735479
    Member

    er bara eitt slab í valshamri???

    in reply to: Horfið reipi. #48787
    2704735479
    Member

    SSS.Hafnarfjörður skilaði reipinu. Kann ég honum bestu þakkir fyrir.

    Hjalti Rafn.

    Ps. Sumir misstu af grillveislu.

Viewing 22 posts - 26 through 47 (of 47 total)