0311783479

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 201 through 225 (of 270 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Páskaklifur í Svarfaðardal #48666
    0311783479
    Member

    Myndir úr Wankernum

    http://gallery.askur.org/album121

    -kv.
    Halli

    in reply to: Sjoppan við Jökullónið #48677
    0311783479
    Member

    Ég skil einfaldlega ekki afhverju menn geta ekki bara lagt við Stóru-Mörk og tekið rútuna inn í Mörkina eftir vegi sem er skilgreindur fjallvegur.
    Held að það gengi af Lónins-sjarmanum dauðum að fá einhverja þjónustumiðstöð þar við vaðið. Það eru nú samt einhverjir sem myndu þyggja það með þökkum að geta fengið sér extra beikon, tvær auka kokteilsósur og 4L. af diet-kóki (af því að þeir stefna að því að verða fit og flottir með haustinu) með búrgeisunni við Lónið, en þeir geta alveg haldið áfram að krúsa í Staðarskála til að fá sitt fix.

    Eyðileggjum ekki ljómann af “Merkurferðum” !

    -kv.
    Halli

    in reply to: Fjallamann #48639
    0311783479
    Member

    ívar þú verður að skrifa grein í moggann og starta alvöru ritdeilu :o)

    Góð ferð og skemmtun í Ölpunum.

    -kv.
    Halli

    in reply to: Daglegt brauð #48631
    0311783479
    Member

    Við tökum skurk í þessu um helgina (finnst eins og ég sé farinn að lofa upp í ermina á mér hehehe)

    -hg

    in reply to: Daglegt brauð #48628
    0311783479
    Member

    Ef þú lumar á góðum myndum Ingvar þá endilega láttu okkur vita því nema að þú viljir að Böbbi krúsi á þig í fjórða skiptið ;o)

    Nei að öllu gríni slepptu þá vonumst við til að fá myndir frá sem flestum.

    -lifið heil
    vefnefnd

    in reply to: Banff #48621
    0311783479
    Member

    alltaf gaman af hörku-keppnismyndum þar sem allt er lagt undir, gaf kvöldinu skemmtilegan blæ.

    -kv.
    Halli

    in reply to: týndir skíðastafir og þelamerkurfestival #48586
    0311783479
    Member

    …enda eru þetta harðir krakkar með hausinn í lagi

    in reply to: týndir skíðastafir og þelamerkurfestival #48584
    0311783479
    Member

    Umdeilt atvik:
    http://the-saga.net/images/uploads/Telemark-3-04/pages/ESC_0154.html

    …og hver segir að telemark sé ekki full-contact-sport ;o)

    -kv.
    Halli

    in reply to: týndir skíðastafir og þelamerkurfestival #48576
    0311783479
    Member

    Við sáum þessa stafi þegar vorum að leggja af stað og þar sem við vorum ekki viss hvort þetta væri frá markara eður ei þá þótti okkur best að láta þá Súlumenn taka þá með sér. Þeir settu þá í snjóbílinn sinn og ætluðu að láta þau Bassa, Kristínu og Böbba vita, þa. þau ættu að geta mixað þetta fyrir þig.

    Þakka undirbúnings- og framkvæmdanefndinni fyrir frábær störf !!!

    -kv.
    Halli

    in reply to: Upptökur á batman í skaftafelli #48543
    0311783479
    Member

    klassa pistill Siggi !
    -kv.
    Halli

    in reply to: Telemarkhelgin á Akureyri 2004 #48552
    0311783479
    Member

    Þetta hljómar mjög vel
    -kv.
    Halli

    in reply to: Aðalfundur og myndasýning #48523
    0311783479
    Member

    Það er líklega Sportklifurfélag Reykjavíkur sem þú átt við. Klifurfélag Reykjavíkur er rekstrarfélag Klifurhússins.

    -kv.
    halli

    in reply to: Í minningu um mann #48518
    0311783479
    Member

    Var við æfingar fyrir mótið í Hlíðarfjalli í gær, lét eina ferð nægja niður norðurbakkann sem var fínn neðst en bara gler efst. Sá heldur betur eftir því að hafa ekki tekið á köntunum (þeir voru nokkuð rúnaðir), þakkaði mínum sæla fyrir hafa staðið þetta niður á eftir Jóni Hauki sem virtist EKKI hafa gleymt að massa kantana.:o)

    Helga Björt sagðist hafa lent í nýsnævi á Kaldbak á lau. með Bassa ofl.

    Á laugardeginum sá ég að nógur er snjórinn fram í firðinum, þannig að etv. mætti skoða Dalvík/Ólafsfjörð eða jafnvel Siglufjörð með hluta af festivalinu.

    -kveðja
    Halli

    in reply to: Mynd dagsins #48512
    0311783479
    Member

    Ég stefni norður um helgina þannig að við sjáumst í fjallinu Bassi, mun gefa SAS-skýrslu á síðuna eftir helgi.

    -kv.
    Halli

    ps. SAS stendur fyrir “sérfræðingur að sunnan” ;o)

    in reply to: Mynd dagsins #48509
    0311783479
    Member

    Bassi er magnaður að venju og tímasetningin óaðfinnanleg, 10 mín. eftir að myndin birtist. :)

    Bassi, hvað heitir annars hyggurinn fullu nafni sem skefur þarna fram af?

    -kv.
    Halli

    in reply to: Festivalstilboð!!! #48493
    0311783479
    Member

    Já ég held að það sé kirfilega komið móment fyrir dótabúð, af illri nauðsyn fann klifurhúsið sig knúið til að flytja inn túttur því enginn serveraði LaSportiva lengur. Spurning hvort einhverjir framtaksamir sjái sér nú ekki leik á borði og sæki inn á markaðinn með litla yfirbyggingu í ódýru verslunarhúsnæði.

    -kv.
    Halli

    in reply to: Stífir leðurskór. #48476
    0311783479
    Member

    Er ekki eina lausnin að panta þetta bara að utan? Allavegana held ég að engum detti lengur í hug að kaupa sér t.d.Scarpa T1 telemarkstövlar á 40þús. döðlur í Útilífinu.

    Æ oftar saknar maður gömlu Skátabúðarinnar þar sem pupullinn gat labbað inn af götunni og treyst því að e-ð væri nú til af varningi. Þetta farið að minna á dönsku einokunarverslunina þar sem menn biðu eftir komu haustskipanna.

    Árni, hvaða týpum mæla menn með af stífum leðurskóm?

    -kveðja
    Halli

    in reply to: Takk fyrir síðast #48474
    0311783479
    Member

    Góður pistill Eiríkur áður en þú veist af verður vefnefnd búin að véla þig í “fréttaritarastörf” ;)

    Við Steppo, Andri og Sissi náðum frábæru klifri á sunnudaginn við 3. vegskála í Óshlíðinni. Alvöru “roadside” leið, bílnum lagt í vegkantinn og svo 10 skref og klifur hefst.

    Kannski eitt sem mætti bæta við pistilinn að Russel Baker, sá sem lenti í stóra flóðinu slapp frá þessu nánast ómeiddur eftir að hafa farið ca. 300m. niður með því, mikið rosalega var hann heppinn.
    Sjá myndir frá Tryggva:
    http://bjsv.icelandic.net/%CDsklifurfestival/sklifurfestival_006
    http://bjsv.icelandic.net/%CDsklifurfestival/sklifurfestival_009
    http://bjsv.icelandic.net/%CDsklifurfestival/sklifurfestival_005
    http://bjsv.icelandic.net/%CDsklifurfestival/sklifurfestival_015

    -kv.
    Halli

    in reply to: Fréttir af Ísklifurfestivali #48465
    0311783479
    Member

    Af okkur sunnanmönnum þá verða þetta 3 bílar, SiggiT. og co. leggja af stað kl. 1600 og svo hinir tveir fara rétt fyrir 1700.
    Þ.a. við sjáumst þá í kringum hálftólf í kvöld
    -kv.
    Halli
    8567172

    in reply to: Telemarkhátíðin á Akureyri #48463
    0311783479
    Member

    Dagskráin er fín. Ætla menn að hafa einhvers konar klínk fyrir byrjendur?
    Er ekki allur snjór að fara úr fjallinu?
    -halli

    in reply to: Það er bullandi snjókoma á Ísafirði #48451
    0311783479
    Member

    Því miður þá styður umræðusíðan ekki html-tög, en það væri flott ef það væri hægt.

    Ef þú lumar á fleirum myndum Eiríkur, þá væri tilvalið skella þeim inn á “þínar síður”.

    -kv.
    Halli

    in reply to: Myndin hans Palla! #48429
    0311783479
    Member

    Frábært framtak Palli að hafa spurningu dagsins!

    Er þetta ekki í suðurhlíðum Brynjudals (þ.e. þeirri hlið er snýr mót suðri) og sér maður ekki móta fyrri mynni Hestgils þarna til innarlega til hægri á myndinni?

    Án þess að hafa hugmynd um það né leiðina þá giska ég á þetta sé gátuhöfundurinn sjálfur Palli.

    -kv.
    Halli

    in reply to: Hvar voru allir um helgina??? #48413
    0311783479
    Member

    Er Ypsilonið ekki Rísandi? Minnir að Stígandi sé bara ein samfelld lína.
    Helginni var annars eytt í kvef :(

    -kv.
    Halli

    in reply to: Eru norðan menn latir menn? #48393
    0311783479
    Member

    Hafa menn einhverjar spurnir af Kinninni, er ekki nógur ís þar?
    -kv.
    Halli

    in reply to: LAUSAMJÖLL ÚT UM ALLT Í HLÍÐARFJALLI #48375
    0311783479
    Member

    Fór norður og fann loksins þennan umtalað KEA-snjó sem þeir norðan menn hafa verið svo duglegir að prísa. Lausa mjöll upp undir handarkrika (reyndar bara þegar maður fór niður í beygjurnar ;o). Aldrei að vita nema að maður hendi inn myndum af herlegheitunum.

    kv.
    Halli

Viewing 25 posts - 201 through 225 (of 270 total)