0111823999

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 26 through 50 (of 80 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Það nýjasta í snjóflóðafræðunum #56009
    0111823999
    Member

    Skreytir brekkurnar?

    in reply to: Til hvers isalp.is? #56008
    0111823999
    Member

    Ég er sammála þessu með að missa Isalp.is ekki inn í Facebook! Ég kíki daglega hérna inn og finnst eins og Hauki nauðsynlegt að geta fylgjst með stöðunni á Íslandi eftir að ég flutti út. Ef að hún færist inn á Facebook þá mun hún týnast í öllum hinum ‘like-unum’.

    Ég er einnig búin að vera að skoða mikið af síðum hérna í Norge sem tengjast ferðalögum og klifri og ég er sammála Hauki með að það er engin sem kemur nálægt Isalp.is (kannski bara að því að það vantar fólkið ;))

    En það mætti endilega skoða myndamálin betur. Man þegar ég skráði mig fyrst inn á isalp.is þá var nokkuð skemmtilegur mynda’fídus’ hérna þar sem hver og einn meðlimur gat sett myndir inn á sitt svæði. Alltaf gaman að skoða myndir af afrekum annara ;)

    En lengi lifi Ísalp!

    in reply to: Klifur-landakort #55991
    0111823999
    Member

    Flott hjá ykkur Gummi! Meira svona ;)..
    Er ekki hægt að setja tengil hérna inn á isalp.is að þessu fína climbing korti? Og jafnvel í framtíðinni að skella þessu öllu saman í eitt fínt klifur landakort :)

    in reply to: Klifur-landakort #55986
    0111823999
    Member

    Þetta er frábært! Núna þarf bara að bæta ísklifursvæðunum inn á voila þá er þetta reddí:)

    in reply to: Klifur-landakort #55984
    0111823999
    Member

    Oh þið verðið s.s að þysja út (mínusinn fyrir ekki tölvuséní)

    in reply to: æjæj… #55936
    0111823999
    Member

    Þetta eru alveg rosalegar fréttir..
    En mikið er ég glöð að þú ert samt annars heill á húfi :)
    Batnaðaróskir frá mér, og ég vona að þú verðir kominn sem fyrst á ról aftur!

    HelgaM

    in reply to: Jólagleði í Fjallakofanum #55855
    0111823999
    Member

    Er hægt að versla í gegnum skype? Það er allt svo dýrt hérna í Norge!
    Góða skemmtun alle sammen ;)

    in reply to: Rjukan 2011? #55819
    0111823999
    Member

    Hæ Smári
    Stefnir í að við verðum þarna frá 4 – 9 jan. Endilega vertu í bandi! Getur sent mér mail og ég læt þig fá norska númerið mitt :)

    kv,
    Helga María

    in reply to: Tyrkjaguddur tala #55782
    0111823999
    Member

    Gaman að fá fréttir af ykkur! Skemmtið ykkur vel og við sjáumst svo öll í Rjukan í janúar ekki satt? ;)

    in reply to: Óska eftir fjallaskíðabindingum #55764
    0111823999
    Member

    Stærð 25,5 (40)

    in reply to: Alpaævintýri – video og myndir #55595
    0111823999
    Member

    Like ;) .. Flott video og geðveikt útsýni!

    in reply to: Veður á fjöllum #55322
    0111823999
    Member

    Gaman að heyra, oh hefði langað að komast!
    Mér finnst að þið eigið að birta glósurnar ykkar hérna fyrir okkur sem urðum að vaða mýri upp að hnjám í kvöld og komumst því ekki á fyrirlesturinn..

    in reply to: Myndir frá festivalinu #55309
    0111823999
    Member

    Þetta er alveg að koma á netið, um leið og ég fæ frá fleirum! Koma svo krakkar ;)
    (Heyrist Dóri sitja sveittur yfir því núna að senda mér hehe)

    in reply to: Takk fyrir mig! #55300
    0111823999
    Member

    Þakka ykkur öllum vel unnin störf, leiðinlegt að fá ekki að starfa með ykkur í stjórn ;)

    Hefðum þurft að taka kveðjusöng á fundinum en þar sem það klikkaði þá kemur hann hérna =
    For they’re a jolly good fellow, for they’re a jolly good fellow
    For they’re a jolly good fellow (hold then)(pause), which nobody
    can deny
    Which nobody can deny, which nobody can deny
    For they’re a jolly good fellow, for they’re a jolly good fellow
    For they’re a jolly good fellow (hold then)(pause), which nobody
    can deny!

    Sorry bara varð haha ;)

    En ég þakka hvetjandi orð. Ég tek við mínu starfi full tilhlökkunar og vona að við náum að halda áfram með þá uppbyggingu sem þið hafið unnið að síðust ár.

    kv,
    Helgan

    in reply to: KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn #55285
    0111823999
    Member

    Er það ekki málið?
    Ef spáin er góð þá er ég all in :)
    kv,
    HelgaM

    in reply to: Nýjar leiðir 2009-2010 #55276
    0111823999
    Member

    Upphitun fyrir Festivalið.
    Austurbakki Hvítárgljúfurs, um það bil 1km neðan við Gullfoss
    Klifrarar – Ásgeir, Dóri og Freyr

    Hvítagull WI4 50 metrar
    Rass í skoru WI4 20 metrar
    Svingersklöbb WI3 25 metrar

    in reply to: Nýjar leiðir 2009-2010 #55275
    0111823999
    Member

    Ég var sett í það að skrá nýjar leiðir sem klifraðar voru á Festivalinu, hérna kemur listinn en myndir og nánari lýsingar koma vonandi fyrr en seinna =

    Föstudagur 26/2

    Fjaðrárgljúfur/Mögá (það á eftir að finna nákvæma staðsetningu á svæðinu, er við veginn að Laka)
    Fyrsta leiðin WI4 30 metrar – Dóri, Ásgeir og Helga María
    Pönk WI5 25 metrar – Dóri, Ásgeir og Helga María
    Trappfossen WI4 35 metrar – Dóri og Ásgeir

    Hörgsárgljúfur
    Tunglskin WI4 30 metrar – Freyr og Rúnar Óli
    Gamli Gráni WI4 50 metrar – Ágúst Þór og James McEwan

    Laugardagur 27/2

    Morsárdalur
    Handan við hornið (Just around the corner) WI4 100 metrar Ágúst Þór og James
    Frumskógarhlaup (Junglerun) WI3 250 metrar Ágúst Þór og James

    Rótarfjallsgljúfur
    Rótarinn WI5 120 metrar Freyr Ingi og Rúnar Óli
    Dansgólfið WI5 110 metrar Dóri og Ásgeir

    Sunnudagur 28/2
    Morsárdalur
    Bara stelpur WI3 100 metrar Helga María og Katrín
    Þrír plús- If Ági is not lying WI3+ 50 metrar – Siggi, Jón Yngvi og James

    in reply to: Hvernig var á festivali? #55270
    0111823999
    Member

    Þín var líka sárt saknað um helgina, sérstaklega þegar við fórum að setja upp nýja pottinn! Vantaði alþýðuverkfræðing ;)

    Persónulega skemmti ég mér geðveikt vel og það var mikið stuð í mannskapnum. Það voru 14 nýjar leiðir klifraðar í Öræfunum/Skaftafellssýslunum og einnig nokkrar endurklifraðar, nýjar leiðir voru klifraðar í Rótarfjallsgljúfri, Morsárdal og Fjaðurárgljúfri. Veðrið var með ágætis móti og má segja að við höfum fengið allar árstíðir um helgina, bestur var sunnudagurinn með stillu og -2°c!
    Snjóflóð hræddu líftóruna úr fólki í fyrra en grjóthrun þetta árið, og forðuðu 2 team sér í burtu á hlaupum á laugardeginum.

    Þetta er svona stutta útgáfan af helginni ;) og skráning þeirra hefst vonandi í dag. Ég tók að venju engar myndir svo ég bíð líka spennt eftir myndum, en ég veit fyrir víst að það var tekinn slatti af þeim auk þess sem Herocam var á svæðinu.

    Bk,
    HelgaM

    in reply to: Að pósta myndum… #55269
    0111823999
    Member

    Skemmtilegar myndir ;).. verst með jakkann en gott með öklann!

    in reply to: Ísklifurfestivalið 2010! #55250
    0111823999
    Member

    Já enda frábær þjóðgarður!

    Gistingin er í landvarðahúsinu vestan við tjaldsvæðið (Keyrið í vestur frá því, beygið ekki upp að Bölta/Hæðum heldur haldið áfram)
    verið bara í bandið við okkur þegar þið mætið á svæðið/eruð á leiðinni ;)

    in reply to: Ísklifurfestivalið 2010! #55246
    0111823999
    Member

    Jæja þá hefst festivalið á morgun og vonandi allir komnir með far og í klifurfílinginn!

    Við erum með fullt af góðum fréttum =
    1. Spáin er klifurvæn alla dagana fyrir þá sem láta ekki smá íslenskt veður stoppa sig og heyrst hefur að það sé nóg af ís!
    2. Verði á gistingu hefur verið komið niður í 0kr fyrir Ísalpara, en þjóðgarðurinn hefur ákveðið að bjóða okkur í gistingu í þeirra húsakynnum. Verið í bandið við Helgu Maríu eða formanninn þegar þið komið austur.
    3. Grillpartý þar sem matnum verður skolað niður með gullnum mjöð verður í boði ÍFLM á laugardagskvöldinu.
    4. Ekki gleyma sundfötum þar sem hægt verður að slaka á í náttúrulauginni í Skaftafelli eftir góðan dag á fjöllum.

    Hlökkum til að sjá ykkur öll!
    Festivalsnefndin

    in reply to: Sjóður vegna viðhalds á Bratta í Botnssúlum #55244
    0111823999
    Member

    Er hægt að leggja andvirði sýningarinnar inn á einhvern reikning?
    Þar sem ég efast um að ég verði í bænum annað kvöld en langar að styrkja Bratta.

    kv,
    Helgan

    in reply to: Hringferð climbing.is #55238
    0111823999
    Member

    Geðveikar myndir og já sama spurning og Bjöggi spyr, hvar er hellirinn?..

    in reply to: Hverjum vantar og hver á – far austur?.. #55224
    0111823999
    Member

    Eru ekki einhverjir snillingar á leið austur og með far fyrir þetta frábæra fólk?

    Einum vantar far austur á fimmtudagskvöldið/heim sunnudag
    Einni vantar far á föstudagskvöldið/heim sunnudag

    Getið annað hvort svarað hérna eða sent mér póst á hmh12@hi.is

    in reply to: Kanadagellurnar…fyrir sófaskíðarana #55184
    0111823999
    Member

    Iss er bara enginn snjór á svæðinu? Svipar svoldið til Íslands!

    Gott að vita að þið hafið það gott ;), takk fyrir frábæra skemmtun og flott video.

    Kv,
    Helga

Viewing 25 posts - 26 through 50 (of 80 total)