Útivistarveslanir í Oslo eða Rjukan

Home Forums Umræður Almennt Útivistarveslanir í Oslo eða Rjukan

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45330
    Robbi
    Participant

    Veit einhver um einhverjar góðar útivistarverslanir í Osló eða Rjukan í Noregi ?
    robbi

    #50293
    Sissi
    Moderator

    Ég keypti eitthvað dót í Skandinavisk Høyfjellsutstyr einu sinni, http://www.shu.no/herfinnerduoss.html, hún er svona frekar sentral í Osló. Minnir að úrvalið hafi verið þokkalegt, en Norge er náttúrulega í dýrari kantinum, sjálfsagt bara svipuð verð og hér.

    Annars ættu Fjallaskarpurinn og Skabbi að vita allt um þetta mál.

    Siz

    #50294
    0402764759
    Member

    Tvær nokkuð góðar eru Oslo Sportslager (www.sportslager.no) og einnig Sportnett (www.sportsnett.no).

    Verðið er mjög svipað, en úrvalið og þjónustan talsvert betri. Má nefna að hægt er að kaupa það sem Norðmennirnir kalla “tollfritt” og þá er vaskinum alveg sleppt. Þannig er hægt að spara sér 20%. ATH þetta er ekki alveg það sama og “tax-free”.

    Osló býður í ofvæni, háborg skemmtanalífsins.

    #50295
    Smári
    Participant

    Mæli sérstaklega með Oslo sportslager, mikið úrval og góð þjónusta…

    kveðja úr kuldanum í Norge (-14 í morgun….)

    #50296
    Smári
    Participant

    hvernig er það, er að koma stór hópur að klifra í Rjukan? Ég bý ekki mjög langt frá, væri gaman að hitta á liðið…

    #50297
    Siggi Tommi
    Participant

    Mér skilst að þetta hafi byrjað sem 17 manna hópur en síðustu tölur sem ég heyrði var upp á 10-11 manns.
    Robbi og Freysi fara fyrr en flestir koma um næstu helgi að ég held.
    Sissi, Steppó, Halli G og fleiri eru að fara. Þú ættir endilega að heyra í þeim…

    #50298
    Anonymous
    Inactive

    Ég vona að ykkur gangi allt í haginn þarna úti og takið fullt af myndum og verðið með veglega myndasýningu handa okkur sem heima sitjum.
    Olli

    #50299
    Smári
    Participant

    Það væri frábært ef einhver af þeim sem eru að fara nennir að hafa samband við mig á smaristef@hotmail.com og koma með dagsetningar o.fl. viðeigandi og jafnvel láta vita hvort maður sé yfir höfuð velkominn…:)

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.