tips skinna?

Home Forums Umræður Skíði og bretti tips skinna?

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47002
    1001813049
    Member

    Er að spá að reyna að skella mér í stuttann túr á fimmtudag (morgun) eða föstudag. Kannski Hengilsvæðið eða bara eitthvað í nágrenni Reykjavíkur. Veit einhver eitthvað um aðstæður góðar, slæmar, snjóalög eða eitthvað slíkt. Kannski jafnvél hugmyndir um stað? Og er tilbúinn að deila með mér og öðrum.

    Kv. Kiddi

    #52624
    Freyr Ingi
    Participant

    Sæll, KID
    Skinnaði upp af KR skála Skálafelli í gærkveldi og lenti þar í dúndrandi aðstæðum. Ís og rifskaflar nánar tiltekið grunar mig að þetta séu almennt séð aðstæðurnar sem glíma þarf við á svipuðum slóðum.

    Annars ku vera gaman að skíða Móskarðshnúka hef ég heyrt.

    Minni svo á Ísalp ferð á Eyjafjallajökul á lördag!

    Freysi

    #52625
    0203775509
    Member

    Daginn
    Fórum á Móskarðshnúka fyrripart sunnudags. Gengum upp með skíðin á bakinu en reyndum ekki að skinna. Rifskaflar, harðfenni og ísbunkar á leiðinni niður en rennslið var nú samt gott.

    #52626
    Björk
    Participant

    Já mæli með Móskarðshnjúkunum, stutt og laggott og hægt að skíða alla leið niður í bíl.

    Heyrði af mönnum sem fóru í Botnsúlur um helgina sama þar, hart og frosið.

    En er ekki annars að snjóa?

    #52627
    Karl
    Participant

    S – laga gilið í botni Grafardals var í góðum aðstæðum sl laugardag. -Þú tekur bara þyrluna á Hátind og sleppir skinnunum….

    #52628
    Freyr Ingi
    Participant

    Jú, rétt. Botnssúlur voru vissulega í svipuðum dúr á laugardaginn.

    En S-gilið í botni Grafardals hlýtur að vera spennó. Hvað kallast annast sá partur fjallsins sem það slöngugilið hlykkjast niður?

    Og hvaða þyrlumambó er þú að tala um Karl?!

    Freysi

    #52629
    Sissi
    Moderator

    Væntanlega sama gilið og Steppo og Helgi skíðuðu á föstudaginn langa er við fengum okkur labbitúr.

    Djöfull voru myndirnar frá ykkur að lúkka, vona bara að leðrið hafi ekki rispast… ;)

    Leit út fyrir að vera aðeins rennilegri en Mi-8.

    Siz

    #52630
    Smári
    Participant

    Kiddi þú kemur bara með í flotta ferð á Eyjafjallajökul á laugard. stefnir í flott færi og veður Þar!!

    kv. Smári

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.