Þverártindsegg

Home Forums Umræður Almennt Þverártindsegg

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45712
    Gummi St
    Participant

    Ég er búinn að vera að þvælast svoldið um Suðursveitina undanfarið og er ekki hættur enn.
    Ég sé að það er verið að plana ferð á Þverártindseggina og datt í hug að sýna ykkur hvernig hún lítur út austanmegin frá. Ég er mjög spenntur fyrir að fara þarna upp.

    http://www.flickr.com/photos/gummistori/2510012798/sizes/o/

    kv. Gummi St.

    #52779
    2806763069
    Member

    Þetta er svo sannarlega flott svæði. Það er augljóst hvar skriðjökullinn Skrekkur er á myninni. Í hægri hið hans er uppleið sem Einar Rúnar kallar Ísalp leiðina (smá foss eða pakkaður snjór í þröngu gili). Næsti dalur við er eins og sjá má af myndinni fullur af snjó sem nær alla leið niður á jafnsléttu. Þetta væri án vafa snildar skíðabrekka. Snjórinn er reyndar líklega að mestu leiti risa stórt snjóflóð sem kemur væntanlega árlega þarna niðu. Þegar ég sá það fyrst var ég ekki viss um hvort ég væri að horfa á lítin skriðjökul eða snjóflóð. Þetta er svona svipað dæmi og fyllir stundum upp í neðrihluta Virkisjökulsleiðarinnar.

    En í öllu falli snildar svæði sem örugglega má líka nýta í smá vorskíðun.

    Hvenær er annars myndin tekin?

    #52780
    Gummi St
    Participant

    Myndina tók ég 18. apríl… Daginn fyrir Birnudalstind.

    #52781
    2806763069
    Member

    Þá er hægt að álykta að austurveggurinn komist ekki í aðstæður á hverju ári. Amk ekki fær þegar þessi mynd er tekin.

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.