Þumall

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Þumall

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46786
    Siggi Tommi
    Participant

    Fór við sjöunda mann úr HSSR á Þumal um helgina.
    Mikil snilld þrátt fyrir laaaaanga göngu, óbrúað jökulfljót og þoku framan af.
    Stutt ferðasaga á hssr.is og nokkrar myndir frá Gulla granít á
    http://www.facebook.com/album.php?id=758954621&aid=43424

    Fyrst verið er að reyna að halda utanum ferðir á Hraundranga, væri þá ekki ráð að reyna það með Þumal líka. Að öllum líkindum færri heimsóknir þangað upp sökum massívrar aðkomu.

    #52912
    Sissi
    Moderator

    Bíddu þetta er nú bara smá spotti, eða ertu orðinn svona mikill búúúðingur eins og eldri sonur þinn segir? ;)

    Verst með brúna undir Skaftafellsheiði sem færist alltaf neðar og neðar eftir því sem maður gengur lengra á bakaleiðinni. Töfrar? Kukl?

    Siz

    #52913
    Siggi Tommi
    Participant

    Argasti püdding royal, það er nokkuð víst.

    Það er nú þannig með mig í seinni tíð að ég er oftast að klifra og ver afar sjaldan meira en 1-2 tímum í aðkomu þannig að heils dags ganga er eitthvað sem kerfið er ekki sérlega vant. Annars var gangan svosem ekki vandamálið, aðallega bara að þetta var langt fram á nótt.
    Maður ætti kannski að fara að ganga meira…
    …en klifur er bara svo miklu skemmtilegra!

    Þá er það getraun dagsins.
    Hvaðan er eftirfarandi ritstúfur?
    “If you don’t eat your meat, you can’t have any pudding! How can you have any pudding if you don’t eat your meat?!”

    #52914
    Stefán Örn
    Participant

    Þetta mun vera af hinni stórgóðu plötu The Wall með Pink Floyd.

    Hils,
    Steppo

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.