smá vídjó

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur smá vídjó

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #44720
    Smári
    Participant

    Ekkert smá gaman að vera búinn að fá sér gopro :) nú tekur mður allt upp.
    Hér er smá vidjó sem ég klipti saman eftir skemmtilegan dag í bodö (Noregi)
    https://vimeo.com/56159724
    Hér er búið að vera stanslaust frost í 4-5 vikur og enginn snjór ss flottarmklifur aðstæður.

    kv. Smári

    #58063
    Siggi Tommi
    Participant

    Voða fínt. Takk fyrir það.
    Athyglisvert að sjá menn klifra með twin-rope aðferðinni (as opposed to “half-rope”). Ekki margir notað þetta hérna heima svo ég viti.
    Yfirleitt er ísklifur svo mikið zikkzakk að menn fagna því að geta klippt línunum til skiptis til að minnka rope-drag (rosa er lítil íslenska í þessu hjá mér… :)
    Twin-rope minnkar þó mögulegt spaghettí sem getur orðið (og verður æði oft) þegar verið að klippa þvers og kruss og hægri vs vinstri hlutverkum ekki haldið nógu vel til haga.
    En svo komast menn líka upp með að nota þynnri línur í twin-rope, sem eru ekki hannaðar til að taka fall einar og sér. Gefa þannig kosti tveggja spotta (tvöfalt sig, þrír í teymi) en eru léttari en tvær half-rope.
    Óska mönnum annars gleðilegra klifurjóla og vona að menn nýti frídagana í leikaraskap og tóma vitleysu. :)

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.