Skráning á telemark festival

Home Forums Umræður Skíði og bretti Skráning á telemark festival

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47376
    1811843029
    Member

    Bara til að það fari ekki á milli mála þá verður Telemark festivalið næstu helgi. Dagskrá og nánari upplýsingar eru í frétt hér efst á isalp.is

    Skráning er undir dagskrárliðnum “telemarkfestival” í dagskránni sem er líka hér á síðunni.

    Það er mikilvægt að þeir sem mæta á festival skrái sig.

    Mótshaldarar ætla að leggja minni áherslu á búningakeppnina í ár en það ætti auðvitað ekki aftra keppendum frá því að mæta prúðbúnir til leiks.

    Veðurspáin er ekki amaleg fram að helgi, fullt af púðri…allir norður!

    #56463
    Björk
    Participant

    Minni áhersla á búningakeppnina? Það eru búningafundir útum allan bæ!

    Mótshaldarar þurfa ekki að hafa mikið fyrir búningakeppninni. Telemarkfestivalið er fólkið og fólkið eru búningar ;)

    #56465
    1811843029
    Member

    Jón Marinó yfir mótshaldari getur kannski útskýrt þetta betur. Það er auðvitað ekki nokkur ástæða til að mæta ekki í búningum!

    #56464
    0808794749
    Member

    Bassi minn. Þér er velkomið að vera með okkur liði ef enginn annar er búinn að bjóða þér í lið ;-)
    Við þurfum engin verðlaun! Búningarnir eru til að skapa stemmningu í fjallinu. Ef ekki væri búninga þá gæti Telemarkfestivalið allt eins verið skíðakeppni fjármálafyrirtækja…

    #56466
    0704685149
    Member

    Auðvita eru búningar, mér fannst svo sjálfsagt að þeir væru hluti af þessu að það tæki ekki að nefna það.

    Einhver misskilningur í gangi eða ég verið eitthvað óðamála og ekki komið alveg hlutunum rétt út úr mér þótt ég hafi verið að hugsa um að segja allt annað…það hefur alveg oft komið fyrir hjá mér.

    Einhver hundslappadrífa sem hefur bjagað mínar hugsanir…

    Já takk, ég þigg það, Sveinborg

    kv.
    Bassi

    #56467
    1811843029
    Member

    Sjúkk, næst notum við túlk Bassi

    En gaman að sjá að búningakeppnin er hvergi nærri dauð!

    #56483
    2002773689
    Member

    Maður heyrir að í hverju húsi sé verið að laumupúkast eitthvað með búninga. Allt að drukkna í púðri norðanheiða og bullandi stemning.

    #56484
    0801852789
    Member

    Stefni á létta Þelamerkursveiflu, ekki stigið á síðan síðast gríðar stuð. Má skrásetja mig.

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.