Siglufjörður – mekka skíðamennsku??

Home Forums Umræður Skíði og bretti Siglufjörður – mekka skíðamennsku??

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45701
    1709703309
    Member

    Eftir að hafa skíðað á Siglufirði á Telemarkfestivalinu þá spyr maður sig. “Í hvaða villu hefur maður búið að vera ekki búinn að prófa það svæði áður.” Nokkuð ljóst að þangað á maður eftir að venja komur sína oftar til að stunda skíðamennsku.

    Hlíðarfjall hvað er nú það?

    Takk fyrir mig á Telemarkfestivalinu.

    Kv.
    Stebbi

    #48596
    0704685149
    Member

    Gat verið, um leið og ég tók drusluna úr framdrifinu byrjaði að snjóa. Nú hefur snjóað hér á Norðurlandi, þannig að allt er að færast til betri vegar og skíðafærið getur ekki annað en batnað.
    Ég renndi upp í Hlíðarfjall í gærkveldi og það leit mun betur út svona hvítt.
    Snjór í kortunum fram yfir sunnudag ef ég les úr þeim rétt.

    Kv.
    Bassi

    #48597
    0704685149
    Member

    Verði þér að því, okkur finnst alltaf gaman að fá þig.
    Gat verið, um leið og ég tók drusluna úr framdrifinu byrjaði að snjóa. ( Hér fyrir norðan setur maður bara í framdrifið 1. sept. og nagla undir og svo er bíllinn settur í sumarhaminn 1. maí) Nú hefur snjóað hér á Norðurlandi að verða í sólarhring, þannig að allt er að færast til betri vegar og skíðafærið getur ekki annað en batnað.
    Ég renndi upp í Hlíðarfjall í gærkveldi og það leit mun betur út svona hvítt.
    Snjór í kortunum fram yfir sunnudag ef ég les úr þeim rétt.

    Kv.
    Bassi

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.