Púlkur

Home Forums Umræður Keypt & selt Púlkur

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #54044

    Er þessir Brunnár-sleðar eitthvað í líkingu við þá sleiða sem Ingvar, Halldór og Helgi Borg drógu yfir Vatnajökul fyrir nokkrum árum og mynd var gerð um?

    #54045
    0309673729
    Participant

    Passar, við notuðum Brunnár-sleða. Þeir reyndust frábærlega. Ég mæli eindregið með að fólk fjárfesti í original eintaki.

    Færið upp Grímsfjallið var þungt, langleiðina upp á hné á skíðum. Ég á mynd af tveimur varnaliðsberserkjum paufast þarna upp með eina púlku. Annar dró en hinn ýtti. Svo fóru þeir niður og náðu í hina. Við sem höfðum sleðana máttum bíða heillengi eftir þeim uppi. Auðvitað hefðum við átt að setja púlkurnar á sleðana og hjálpast síðan saman upp með allt draslið. Það var bara svo miklu skemmtilegra að sjá þessa berserki hafa svona mikið fyrir þessu.

Viewing 2 posts - 26 through 27 (of 27 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.