Nýliði óskar eftir reynsluboltum

Home Forums Umræður Almennt Nýliði óskar eftir reynsluboltum

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46353
    BjorgF
    Member

    Sælir félagar. Ég er nýskráð í klúbbin. Er í gönguleiðsagnar námi hjá MK og hef áhuga á að komast í eins magar ferðir og ég get, núna og fram að sumri, bæði dagsferðir og lengri og þá helst með mér reyndari mönnum og konum. Ef einhver ykkar er á leið í göngu þá má sá hinn sami gjarnan hafa mig í huga ef hægt er að kippa auka gemling með. Lofa góðum félagsskap og þolinmæði nemandans :)
    Eins eru allar ábendingar um allt milli himins og jarðar í sambandi við fjallamennsku og starf Alpaklúbbsins vel þegnar. Á eftir að læra ísklifur en það verður von bráðar. Einnig er hægt að hafa samband við mig í gegnum fjésbók.
    Kær kveðja
    Björg Fríður Elíasdóttir

    #57463
    Gummi St
    Participant

    Sæl Björg,

    Til að fá þetta dáldið á hreint sem þú ert að biðja um,

    Ertu að óska eftir að komast í
    1. ísklifur?
    2. klettaklifur?
    3. alpaklifur?
    4. fjallaskíðun?
    5. fjallgöngur?

    Myndi mæla með að koma á einhvern viðburð hjá okkur og kynnast fólkinu, það er lang best þar sem við getum verið feimin við að taka með okkur nýtt fólk sem við höfum aldrei séð einfaldlega vegna þess að við erum jú yfirleitt að fara að leika okkur en ekki að passa uppá byrjendur. Margir hér vinna við það og fara svo í skemmtiferðir sjálfir.

    Einnig eru í boði afsláttur í gegnum okkur á ýmis námskeið hjá fjallaleiðsögumönnum sem henta þeim sem eru að komast í sportið. Getur séð þau í dagskránni vinstra megin.

    Í fyrra fórum við svokallaða nýliðaferð á Skessuhorn sem var mjög skemmtileg og gæti vel verið að slík ferð verði farin aftur áður en veturinn er úti. Slík ferð er frábær vettvangur til að finna félaga í sportið.

    Vonast til að sjá þig á næstu viðburðum og gangi þér vel.

    -GFJ

    #57465
    BjorgF
    Member

    Er að tala um fjalla og jöklaferðir. Er á námskeiðum hjá ísl. fjallal. í gegnum skólan. Takk kærlega fyrir svarið. Skal reyna að þefa upp viðburði :-)
    kv. Björg

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.