Ljósmyndasamkeppni

Home Forums Umræður Almennt Ljósmyndasamkeppni

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45665
    0808794749
    Member

    Fjöldi fólks beið spennt eftir úrslitum í ljósmyndasamkeppninni en þau voru kynnt í hléinu á Banff í gær. Fjallakofinn veitti glæsileg verðlaun fyrir bestu myndirnar.

    Dómnefnd sá ástæðu til að verðlauna tvær ólíkar myndir.

    Guðmundur Jónsson fékk glæsilega hjálm og karabínur frá Fjallakofanum fyrir mynd sem hann tók af Albert Liectfried og Marcus Bendler klifra Stekkjastaur.

    Guðlaugur Ingi Guðlaugsson fékk tvistasett einnig frá Fjallakofanum fyrir svala mynd af Herdísi Sigurgrímsdóttur.

    Fjöldi flottra mynda berst í keppnina og munum við setja þær hér inn á síðuna bráðlega.

    Ég held það sé óhætt að segja að ljósmyndasamkeppnir séu komnar til að vera. Næst verður stefnt af því að keppa í fleiri flokkum. Haldið því myndavélunum áfram á lofti!

    #51495
    Gummi St
    Participant

    Margar mjög flottar myndir sem voru þarna á ferð, það verður gaman að sjá þær allar hér!
    Takk fyrir mig !
    Gummi St.

    #51496
    1908803629
    Participant

    Það hefur eitthvað verið rætt um að birta einhverjar af myndunum í ársritinu – ekki galin hugmynd þar.

    #51497
    2908805139
    Member

    Ég frétti af því alla leið til Miðausturlanda að ég hafi ratað upp á bíóskjá á Íslandi og alla leið í annað sæti!

    Nú verðiði að láta myndirnar inn á vefinn, áður en ég ferst úr forvitni.

    #51498
    2802693959
    Member

    Langar að minna Guðlaug að senda mér myndina af Herdísi svo ég geti skvísað henni og mynd Gumma í næsta tbl Útiveru … á meðan fréttin er heit;-)
    Vinsamlega sendu á jongauti@fjolvi.is

    Takk, jgj

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.