Lagning brautar í samhliðasviginu

Home Forums Umræður Skíði og bretti Lagning brautar í samhliðasviginu

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46460
    0704685149
    Member

    Nú er undirbúningsvinna við lagningu keppnisbrautarinnar í samhliðasviginu kominn langt á veg. Stefnt er að því að brautin verði tilbúin kl. 11:00 á laugardagsmorguninnn.

    Búið er að ráða svigbrautarsérfræðing frá Skíðasambandi Íslands til að koma að þessu verkefni. Hann lærði í Noregi og hefur unnið svipuð verkefni hjá Skíðasambandi Evrópu og komið að lagningu brauta í alþjóðlegum stórmótum viðsvegar um heiminn.

    Þetta er gert til þess að reyna að jafna keppnina að beiðni ónefnds liðs sem hefur lagt fram kærur eftir hvert Telemarkfestival, ár eftir ár um að brautirnar séu ekki með sömu þverun í hliðum og hröðun þeirra sé misjöfn.

    kveðja

    #52540
    Sissi
    Moderator

    Ein létt spurning: Er jákvæð fylgni milli hlutfalls verkfræðinga í svona liði og hlutfalls tuðs?

    Annars hitti ég Steppo fjallaskíðamann og Sigga Kítti úr Vesturbænum í gær. Steppo sagði að hann ætlaði að dusta rykið af telemarkinu fyrir þetta mót og rústa öllum, þetta væri nefnilega svo létt.

    Sel það ekki dýrar en ég keypti…

    En ég held að það gæti verið áhugavert að stofna til keppni í kráarslagsmálum á laugardagskveldinu, “Pöbba-pönsið” eða bara “Fight Club”.

    Efast ekki um að Nashyrningurinn myndi taka það.

    Siz

    #52541
    0311783479
    Member

    …held ad thad hljoti ad vera!

    #52542
    Sissi
    Moderator

    Það er náttúrulega einstakt tækifæri til að líða eins og Jóa vini Símonar: “he believes he’s back in a parking lot in England, cock-eyed under the influence of alcohol and/or another pub crawler’s fist.”

    #52543
    Goli
    Member

    Flott mál Bassi.

    Þegar ég tók þátt í samhliðasvigi á unglingameistaramóti á síðustu öld var rutt upp stökkpöllum / stöllum í brautinni, ca metersháir flatir pallar þvert á brautirnar. Lítið mál á troðara.

    Þetta fannst mér, ungum að árum, helvíti flott. Það er hálf “dull” ef brautin er bara eins og hver önnur svigbraut, en svona aukaþrautir mega heldur ekki fara út í vitleysu….:)

    P.S. Er það rétt að Sissi ætli að keppa á splitboard með lausa hæla?

    #52544
    Sissi
    Moderator

    Ja það styttist í það. Mér er farið að ganga prýðilega að labba á þessu, án þess að detta mikið á hausinn. Og jafnvel að svolgra í mig vinstribeygjuolíu.

    Rústa ykkur eftir nokkur ár.

Viewing 6 posts - 1 through 6 (of 6 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.