Klifur komið inní ÍBR.

Home Forums Umræður Almennt Klifur komið inní ÍBR.

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45186
    2003793739
    Member

    Nú gerðist það loksins eftir mikla og langa baráttu að Klifurfélag Reykjavíkur fékk inngöngu í Íþróttabandalag Reykjavíkur.

    Sportklifurfélag Reykjavíkur sótti fyrst um inngöngu árið 1996 en fylgdi því ekki nógu vel eftir. Mikið var um bréfaskriftir fram og til baka um lagabreytingar sem enduði í skúffunni í nokkur ár.
    Þegar Klifurfélag Reykjavíkur var stofnað (m.a. til að reka Klifurhúsið) var þráðurinn tekinn upp að nýju og fékk það inngöngu.

    Árni G. og Björn B. byrjuðu þessa baráttu sem Ívar fylgdi svo eftir á þessum vetri og eiga þeir allir hrós skilið.

    Þetta er viðurkenning fyrir alla þá sem stunda klifur, sérstaklega þá sem æfa og keppa í klifri hérlendis sem og erlendis.

    Kv
    Halli

    #48751
    0405614209
    Participant

    Stórfínt. Vel að verki staðið og nú ættu hlutirnir að fara að gerast fyrir alvöru..

    Kveðja
    Halldór

    #48752
    0311783479
    Member

    Glæsilegt !!!
    Nú er etv. hægt að fara að gera lengri plön en bara fram yfir næsta sumar ;o)

    -kv.
    Halli

    #48753
    Ólafur
    Participant

    Þetta er mjög gott mál. Nú þarf bara að fara að pressa á það að hér verði byggður alvöru keppnisveggur svo við getum haldið Norðurlandamót og alles…

    #48754
    0405614209
    Participant

    Ég er búinn að leggja Norðurlandamótsmálið fram á 2 stöðum (Laugardalshöll og Egilshöll). Það þarf að finna á þetta sponsor og þá er þetta on. Hugmyndir voru líka uppi um að halda Iceland Open.
    Nánari fréttir á næstu dögum…

    Kveðja
    Halldór

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.