grjótglímu-dívan

Home Forums Umræður Almennt grjótglímu-dívan

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #44896
    0311783479
    Member

    Hvaða grjótglímudýnum mæla menn með?
    Kannski frekar hvað fítusa þarf að hafa í huga þegar valið er á milli tegunda?

    Er á leiðinni að fjárfesta í slíkum grip.

    -Halli

    ps. Ég held að klifursamfélagið sé ábyggileg “all systems go!” á að bolta Stiftömtin, enda fellur lýsingin vel að niðurstöðum “Umræðufundarins mikla” í fyrra, þe. ekki hægt að tryggja náttúrulegum tryggingum og er ekki á svæði sem nú þegar er vel mótað sem nátt.klifursv. (NB! mér finnst sem Stiftamtið sé ekki partur af Stardals-klifursvæðinu) :o)

    #49751
    Skabbi
    Participant

    Sæll gamli

    Ég var mikið að spá og spekúlera í þessu sama fyrir stuttu. Er reyndar enn ekki búinn að ákveða hvort það verður crash pad eða tveir friendar sem peningurinn fer í…

    Allavega. Til að byrja með mæli ég með því að leggja dýnuna á golfið í búðinni og trampa áðeins og hoppa á henni. Sumar dýnur eru stífari en aðrar og þær mýkstu eru of mjúkar að mínu mati. Ég mæli einnig frekar með dýnu sem er ekki með broti í miðjunni (taco-shaped) heldur en dýnu í tvennu lagi (sandwich-shaped). Ástæðan er sú að það er þægilegra að troða öðru stöffi sem þú vilt hafa með (skó, kalk, föt, nesti) inní samanbrotið taco-ið en samlokuna. Auk þes getur verið óþægilegt að lenda beint á brotinu í samlokunni.
    Einnig má hafa klæðningu dýnunnar í huga til þess að þurrka þeðanaf skónum áður en klifur hefst. Sumar dýnur eru bara klæddar nælon dúk sem er gagnslaus til slíks brúks á meðan aðrar hafa sérstakar mottur til afþurrkunar eða eru klæddar efni sem þurkar betur skít og drullu.

    Að lokum er gott að hafa í huga að dýnan sé þægileg til burðar, ef þú getur ekki keyrt beint upp að hnullanum sem þú ætlar að taka í karphúsið.

    Þær tegundir sem ég hef skoðað hér eru Pezl, Franklin og Revolution (sem áður var Cordless og Pusher). Allar frambærilegar er er ekki frá því að ég hallist að Revolution.

    Þar sem ég veit að þú ert í Skotlandi hvar klifur er ekki klifur nema það sé trad (eru það ekki þeir sem segja “sport climbing is neither!”) er ég ekki viss um að þú hafir um auðugan garð að gresja í þessum efnum. Gangi þér samt vel.

    Skabbi

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.