Fyrsta ísklifur vetrarins?

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Fyrsta ísklifur vetrarins?

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47258
    0304724629
    Member

    Eins og allir kannast við en enginn þorir að viðurkenna, þá er óformleg keppni um hver er fyrst/ur að lemja ís haustsins. Örvar og Jonni félagi hans fóru í Naustahvilft sl. sunnudag og fundu ágætis ís. ,,Lentu” í myrkri án þess að vera með ljós, brösuðu við vaffþræðingar í langan tíma og fleira rookie stuff. Er Naustahvilft sigurvegari ársins?

    rok

    #54675
    Skabbi
    Participant

    Lítill fugl sagði mér af tveimur heljarmennum sem keyrðu upp undir Þórisjökul þann 3. október. Fundi dulítið ísskæni og klifu. Ekki hefi ég heyrt af frekari afrekum síðan þá.
    Jonni og Örvar hafa samt líklega verið fyrstir til að klifra “ágætis ís” í vetur, sem og fyrstir til að gera vaffþræðingu, ef það má vera e-r huggun harmi gegn.

    Allez!

    Skabbi

    #54676

    Flott hjá strákunum. Tóku þeir ekki myndir?

    kv. Ági

    #54677
    0304724629
    Member

    Þeir voru ekki með myndavél. Þið verðið bara að trúa mér…

    #54678
    2806763069
    Member

    Ekki einu sinni astraltertu gubb?

    #54679

    Mér skilst þeir hafi skemmt síma og týnt ísskrúfu í þessari ferð.

    #54681
    Sissi
    Moderator

    eru ekki allar ferðir í Þórisjökul með minna tjóni en 2 línum og 10 skrúfum nokkuð vel heppnaðar?

    #54683
    Robbi
    Participant

    Sizzi…það skilur þig enginn, þú talar í gátum.
    En glæsilegt með ísinn, gott að einhver er að gera eitthvað.

    robbi

    #54684
    2806763069
    Member

    Úff, loksins að einhver bara sagði honum sannleikann!

    #54685
    AB
    Participant

    Robbi og Íbbi, þetta er í raun ykkar vandamál. Sissi er gefinn fyrir grín í fjórðu víddinni, sem er fyrirbæri sem þið kunnið augljóslega engin skil á. Svona er þetta alltaf – frumkvöðlarnir eru barðir niður af skilningssljóum almúganum.

    Og ég sem hélt að allir vissu allt um Stóra-Þórisjökulsklúðrið.

    Kv,

    AB

    #54686
    Sissi
    Moderator

    Já rétt er það. Það er gaman í fjórðu víddinni en stundum er svolítið bergmál.

    En lítill fugl hvíslaði að mér að það væri sitthvað úr fjórðu víddinni sem leyndist í næsta ársriti, ég er orðinn ógurlega spenntur enda skilst mér að þetta sé aaaalveg að detta í prentvélina.

    Svo sokkar allra landa, borga árgjaldið og bíða svo spenntur við bréfalúguna, eins og Corky að bíða eftir skólabílnum.

    Sissi^4

Viewing 11 posts - 1 through 11 (of 11 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.