fjallaskíða og telemark græjur til sölu

Home Forums Umræður Keypt & selt fjallaskíða og telemark græjur til sölu

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47594
    Jokull
    Member

    Fyrstir hringja fyrstir fá

    Fjallaskíði: SELD

    Atomic Beta Ride 9.22 180cm 106-72-98, Skinn og Fritschi Diamir bindingar. Orginal Diamir, topp græjur í fínu standi, miðlungsmikið notaðar.
    Verð: 60.000.-

    Telemark skíði:

    Dynastar 4×4 185cm 111-79-100, Skinn og G3 Targa bindingar.
    Hörku græjur skíðin sem ný að neðan. Miðlungsmikið notað.
    Verð: 40.000.-

    K2 Piste Stinx 185cm 98-69-86, Límlaus skinn og Red Chilli bindingar.
    Mikið notað en fínar græjur fyrir þá sem eru að byrja.
    Verð 20.000-

    Scarpa T2 kvennskór stærð 8.5 innriskór skel 6/7
    Sem nýjir.
    Verð: 25.000.-

    Scarpa T1 karlskór stærð 8.5 Orginaæ T1 skórinn
    Mikið notaðir en klárir í nokkra túra í viðbót fyrir þá se, ekki vilja missa aðra hendina í búðinni.
    Verð: 4000.-

    G3 Targa bindingar SELDAR
    Sem nýjar.
    Verð: 10.000.-

    Jökull
    6989870

    #54792
    Jokull
    Member

    Afar athyglisvert og líklega til marks um breyttar áherslur í skíðamennskunni að það tók circa 7.5 min að selja fjallaskíðin en ekki sála hefur svo mikið sem reynt að prútta um telemark græjurnar (sem er reyndar alveg leyfilegt) Er nýliðun í TELEMARK úr sögunni og sportið með ??

    JB

    #54793
    1306795609
    Member

    Það var lagið! Út með töflurnar.

    #54794
    Goli
    Member

    Það er bara alltaf að sýna sig betur og betur að það er ekki fyrir hvaða viðvaning sem er að skíða án barnabindinga :)
    Ætli hinir sömu verði ekki fljótlega komnir með hjálpardekk á reiðfáka sína?
    Annars er þetta örugglega allt gott í bland og þegar ellin sækir á er aldrei að vita….en það er langt í það !

    #54803
    Sissi
    Moderator

    Hei Góli þú gætir kannski staðið meira en eina beygju í einu ef þú ættir skíði sem eru með alvöru bindingum? Þessi feisplant þín eru farin að verða mjööög þreytt.

    Sissi

    #54809

    Rétt upp hönd sem eins árs gamall telemark nýliði!

    …og ég er farin að sjá fram á einmanna telemark sveiflur í vetur miðað við umfjöllunina hér síðustu misseri.

    #54811
    Atli
    Member
    Quote:
    Er nýliðun í TELEMARK úr sögunni og sportið með ??

    Einn hér sem er að fikta með þetta, alltaf þegar ég get stolið skíðunum af gamla.

    #54812
    Karl
    Participant

    Til sölu fjallaskíðabindingar Silveretta 404 ……

    #54813
    Skabbi
    Participant

    Ég skal kaupa þær af þér ef þær eru ekki Xtra large.

    Skabbi

    #54814
    Goli
    Member

    Helvíti sérðu vel Sissi neðan af bílastæði….hmmm.

    Þetta er það sem við höfum uppúr þessu bansetta snjóleysi, rífumst eins og tjeddlingar á netinu í staðinn fyrir að rippa púður, svei!

    #54815
    1001813049
    Member

    kannski ættuð þið einmitt að hætta að tuða og koma norður um helgina og tæta púðrið.

    http://www.akureyri.is/hlidarfjall

    #54816
    2806763069
    Member

    Væntanlega ekki hægt að gera neitt fjallaskíða – ef Hlíðarfjall er ekki inni í myndinni?

    kv.
    Ívar

    #54825
    Steinar Sig.
    Member

    Ég er tilbúinn að bjóða í Silvretta bindingarnar. Þýðir samt ekki að ég sé hættur í telemarkinu.

    steinarsig(hjá)gmail(púnktur)com

    #54831
    0801667969
    Member

    Talandi um telemarkið þá eru alltof margir sem fara á mis við þá mögnuðu tilfinningu sem fylgir því að vera á dúnmjúkum leðurskóm á mjóum skíðum og þurfa að beita tækninni að fullu, setja líkama og sál að fullu í hverja beygju. Það er fátt sem slær það út að sveiflast niður einhverja brekkuna í óbyggðum á gönguskíðum með níðþungan bakpoka eða púlku. Þetta eru eftirminnilegustu og mest gefandi „momentin“ . Telemark á þyngri og öflugri búnaði er einfaldlega annað sport. Fyrstu árin þá voru skórnir sem ég notaði álíka stífir og efnismiklir og innri skórnir í plastskóm. Lítið annað í boði.

    Það eru nú ekki nema tuttugu ár síðan að engin vissi hvað telemarkið var. Áður en ég fékk opinberun einn þokudag í Bláfjöllum og fór að predika „orðið“ þá var engin gjaldgengur í björgunarsveit nema að eiga fjallaskíði. Það sem ég skildi aldrei af hverju fjallaskíðin duttu nánast alveg út á engum tíma. Skrýtið að sjá einhver tískufyrirbrigði útrýma góðum gildum hlutum.

    Friðun á eldri árgöngum er nauðsynleg svo nýliðun sé næg í sjónum og snjónum. Kannski tímabært að fara að predika „orðið“ aftur með skrifum og námskeiðum til að peppa þetta eitthvað upp. Hef nú samt ekki miklar áhyggjur.

    Talandi um trúarbrögð þá var miklu meira ofstæki í þessu hér áður fyrr. Sat löngum í húsnæði ÍSALP inn á Grensásvegi á miðvikudagskvöldum og þrefaði við Helga Ben einn helsta boðbera fjallaskíðanna um ágæti gönguskíða (löngu fyrir tíma telemarksins). Í einhverri leitinni í Botnsúlum þá sá einhver gönguskíðin mín um borð í snjóbílnum okkar. Skipti engum togum að hann þreif annað skíðið og fleygði því bálillur út í myrkrið. Skíðið fannst ekki og ég því skíðalaus þegar til átti að taka. Þarna innanborðs voru að mig minnir Helgi Ben, Ari Trausti, Hreinn Magnússon, fjórir metrar af tvíburum þeir Ævar og Örvar Aðalsteinssynir, Jón Baldurs, Jón Geirsson o.fl. Elíta fjallamanna á þeim tíma.

    Kv. Árni Alf.

    #54866
    2502835399
    Member

    Ein hér í dvergadeildinni sem hef áhuga á að kaupa notuð fjallaskíði. Þessi eru hér í boði eru heldur stór hugs ég, þar sem ég er einn og ekkert eða nánar tiltekið 157cm. Nota skó nr 35. (Hef ekki ennþá séð fjallaskíðaskó sem eru framleiddir í þessari stærð en það er önnur saga).

    Ef einhver lumar á búnaði fyrir smáfólk eins og mig endilega hafið samband. Telemark kemur einnig til greina.

    Kv. Agnes
    ags6@hi.is

    #54871
    0808794749
    Member

    hæ agnes

    gæti trúað því að þeir væru hrottalega dýrir en góða skó getur maður átt lengi. dynafit virðast gera skó í þinni stærð…

    dynafit á telemark-pyrenees

Viewing 16 posts - 1 through 16 (of 16 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.