Fallinn félagi

Home Forums Umræður Almennt Fallinn félagi

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45589
    0503664729
    Participant

    Salbjörg Óskarsdóttir dó á miðvikudaginn í síðustu viku.
    Salla var öflugur liðsmaður Ísalp um árabil, sat í stjórn og nefndum auk þess að stuðla að öflugu félagslífi Ísalp af miklum krafti.
    Klúbburinn horfir því á eftir góðum félaga sem lagði mikið af mörkum.

    Kveðja,

    Jón Viðar

    #53093
    Skabbi
    Participant

    Leitt er að heyra þegar einn af félögum okkar fellur frá á besta aldri.

    Ég þekkti Salbjörgu ekki persónulega en við lestur gamalla ársrita fer ekki framhjá manni að þar var á ferð hörkudugleg stelpa sem vann mikið og óeigingjarnt starf í þágu klúbbsins um árabil.

    Vinum og aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð.

    Skarphéðinn

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.