Eftir basarinn situr eftir…

Home Forums Umræður Keypt & selt Eftir basarinn situr eftir…

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47525
    Steinar Sig.
    Member

    Ég er enn með Garmont Excursion telemarkskó nr. 41 sem þrá að komast á fjöll. Þeir líta alveg eins út og þessir og virðast svipað slitnir. Henta líka alveg ágætlega í kaldar eða blautar gönguskíðaferðir í stað leðurskóa.

    378893055_090e755805_m.jpg

    Og tvö höfuðljós sem þurfa myrkur:

    Svona

    og

    Svona, nema ekki díóðu.

    #54576
    0808794749
    Member

    ég tók eftir því að það var mikið um telemarkgræjur til sölu á búnaðarbazarnum. eru telemarkarar að selja gamalt til að réttlæta kaup á nýju eða er telemark deyjandi sport?
    bara velta þessu fyrir mér…

    #54577
    1509815499
    Member

    Langt frá því deyjandi sport… Bara gríðarleg þróun í gangi í þessu eins og á öðrum stöðum.

    Sveiflan verður iðkuð sem aldrei fyrr nú í ár.

    #54580
    1509815499
    Member

    Einn telemark trailer þessu til staðfestingar !!

    #54581

    Ég tók eftir því sama og þú Sveinborg og varð smá stressuð. Where’s the love fellow tele-tubbies?

    Annars er ég mjög forvitin að vita hvaða heppni einstaklingur nældi sér í mega hott snowblades? Og ef, út af einhverri óskiljanlegri ástæðu þeir seldust EKKI, þá bíð ég sléttan þúsundkall í þá…

    #54584
    1506774169
    Member

    Á basarnum var ég að leita að tvennu en fann hvorugt: Telemark skó í 43 og bensínprímus. Anyone?
    Gummi: 6921114

    #54585

    Komst því miður ekki á basarinn sem er skítt. Er að leita eftir fjallaskíðum á GÓÐUM díl og helst skinnum.

    Hef lítið verið að skíða en langar að prófa meira. Er að hugsa um sirka 170cm, vil ekki hafa þau of stór en er sagt að þrátt fyrir að vera byrjandi þá sé ekki gott að hafa þau of lítil (er 183cm á hæð). Stefni á að setja Silveretta Easy Go 500 bindingar á fjalirnar. Svo þarf maður víst stafi með þessu líka er það ekki?

    Ef einhver stereóplankarennslisiðkandinn er ekki lengur sáttur við flexið í skíðunum en heldur að það sé skítnóg fyrir fiktara eins og mig sem mun mest þramma uppá við og áfram (og vonast til að komast heill niður), má hinn sami vera í bandi.

    #54586
    0703784699
    Member

    Þetta myndband suck-ar feitt. Skil ekkert í því að BD skuli sjá sóma sinn í að festa logo-ið allann tímann við það. Sá ekki mikla framför þarna, ekkert nýtt síðan ég sá síðast Telemark video 1999 og var það töluvert öflugra en þetta.

    Væri gaman að fá að vita hvaða framfarir væru í gangi í Telemarki? Ef það eru þá einhverjar. Nokkur ár eru síðan ég sá smá framfarir í bindingum og skóm á sýningu hjá einum framleiðanda en held það hafi ekki náð að ryðja sér rúms.

    Eftir að hafa prófað töluvert hnébeygjurennslið að þá gafst ég endanlega upp á því, og skil ekki af hverju nokkur maður ætti að vilja leggja það á sig að beygja sig niður í hverri beygju? Fæst eitthvað meira útúr því? Skil vel pælinguna að vilja leysa hælinn á leiðinni upp, en nú (og hefur verið lengi) er það í boði fyrir þá sem vilja renna sér annað hvort fasta í hælinn eða á hlið.

    kv.Himmi

    #54587
    1509815499
    Member

    Okei þessi trailer átti kannski ekki að sýna neina þróun á telemarkinu því það verður (vonandi) í grunninn alltaf eins (eins og að renna sér venjulega og til hliðar menningin)
    Var heldur ekkert að tala um neitt breiktrough, en þessi þróun sem ég var að pæla í er sú að dýrasta project sem BD hefur ráðist í og tók 3 ár var að hanna skó sem komu út í fyrra. 3 pör af AT skóm og 6 pör af tele skóm. Hef svosem ekki prófað neitt af þessu, en allt sem ég hef lesið og heyrt er bara hrikalega jákvætt.

    NTN bindingarnar sem þú ert eflaust að tala um þurftu auðvitað spes skó sem hefur bara verið bundið við eina skó tegund að ég held. Nú eru 3 af 4 skóframleiðendum byrjaðir að bjóða upp á NTN skó (Scarpa, Garmont, Crispi)

    Þessi umræða um að þurfa að beygja sig niður í hverri beygju á alveg eins mikið rétt á sér eins og að þurfa að príla hærri gráðu leiðir í spotta ef þú kemst upp með lægri gráðu leið… jafnvel án spotta :)
    Bara spurning um metnað held ég :)

    #54588
    Sissi
    Moderator

    Já ok, er þá ekki málið að sýna smá metnað og renna sér með blýbelti?

    :)

    #54589
    Sissi
    Moderator

    Annars hefði ég frekar lagt metnað í að fara erfiðari og flottari línur en að gera mér eitthvað erfitt fyrir með einhverjum extra líkamsæfingum. Fínt að gera telemarkbeygjur bara í ræktinni.

    En ég reyndar verð að taka undir það með stelpunum að mér finnst fleiri og fleiri af mínum rennslisfélögum vera farnir að fjallaskíða og taka telemarkið síðan með til að fara eitt gó á festivalinu…

    Og náttúrulega brjáluð sókn í fjallaskíðunum.

    #54591
    Karl
    Participant

    Hilmar Ingimundarson wrote:
    ….Væri gaman að fá að vita hvaða framfarir væru í gangi í Telemarki? Ef það eru þá einhverjar… kv.Himmi[/quote]

    Himmi, -þelamerkursveiflan er eins og kynlíf og hefur því ekkert breyst í þúsundir ára og kemur ekki til með að breytast.

    Þú verður að passa þig á að festast ekki í einhverju hjakki um hjálpartæki á borð við stinnari skó… og öruggt **********
    -Annars er alltaf gaman að horfa á blár skíðamyndir………

Viewing 12 posts - 1 through 12 (of 12 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.