Denali

Home Forums Umræður Almennt Denali

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47602
    Robbi
    Participant

    Í dag legg ég ásamt Guðmundi Einari Halldórssyni af stað til Alaska. Ætlunin er að ganga á Denali 6194m, hæsta fjall norður ameríku. Við ætlum að hafa það fáránlega gott í þann mánuð sem við verðum úti, tíminn er nægur svo það er aldrei að vita að maður reyni ekki bara að skíða eitthvað skemmtilegt eða brölta eitthvað út frá 14000ft.

    Styrktaraðilar ferðarinnar eru:

    [ul]Fjallakofinn með Scarpa, Marmot, Julbo, Smartwool, Helsport og Black Diamond
    Real Turmat
    Kostur
    Swiss Miss
    Corny
    Canon á Íslandi[/ul]

    #56662
    Sissi
    Moderator

    Glæsilegt, gangi ykkur vel piltar!

    #56663
    Ólafur
    Participant

    May the Force be with you!

    #56664
    1811843029
    Member

    Flottir strákar!

    Gangi ykkur vel og komið heilir heim.

    Endilega leyfið okkur hér á skerinu að fylgjast ef þið hafið færi á.

    #56666
    Björk
    Participant

    Gangi ykkur vel, maður fær vonandi einhverjar fréttir af ykkur.

    kv. Björk

    #56667
    0206862359
    Member

    Næss, gangi ykkur vel.

    #56669
    1908803629
    Participant

    Lykkes

    #56670
    Freyr Ingi
    Participant

    Spennandi dæmi, gangi ykkur vel.

    #56677
    AB
    Participant

    Góða ferð.

    AB

    #56682
    2301823299
    Member

    Snilld!

    #56690
    0703784699
    Member

    Bon voyage….hlakka til að sjá myndir og heyra af ferðum ykkar þegar heim er komið.

    Himmi

    #56707
    Björk
    Participant

    Hvað er að frétta?

    #56711
    Robbi
    Participant

    Héðan er allt gott að frétta. Komnir í 14.000 fet, búnir að bíða af okkur mikla snjókomu í 4 daga en notuðum dagana til að renna okkur í fersku púðrinu. Ferðin búin að ganga annars glimrandi vel. Stefnum á að toppa á fimmtudag eða föstudag, fer svolítið eftir veðri.
    Minni aftur á styrktaraðila ferðarinnar:

    Fjallakofinn með Scarpa, Marmot, Julbo, Smartwool, Helsport og Black Diamond
    Real Turmat
    Kostur
    Swiss Miss
    Corny
    Canon á Íslandi

    #56712

    Þú lætur þetta hljóma eins og göngu í garðinum bara… taka smá púður ride fyrir hádegi, toppa svo eftir hádegi, ef veðrið er sæmó hehe.

    Gangi ykkur vel og farið varlega. Hlakka til að heyra sögurnar og sjá myndirnar maulandi Corny og drekkandi Swiss Miss niðrí Skútuvogi :)

    Já og farðu svo að tala í metrum drengur ;)

    #56714
    Freyr Ingi
    Participant

    Gaman að heyra af ykkur í góðum málum þarna drengir.

    Stuðkveðjur!

    #56716
    2401754289
    Member

    Farid varlega vinir
    Var ad missa einn vin I snjoflodi rett hja ykkur
    Fridjon

    #56717
    Skabbi
    Participant

    Tek undir með þeim sem skrifa hér að ofan, góða ferð strákar en farið varlega í snjónum.

    Allez!

    Skabbi

    #56718
    andrisv
    Participant

    Góða ferð “frændi”

    #56722
    Gummi St
    Participant

    las á annari vefsíðu að þeir hafi toppað Denali

    “Þeir toppuðu 6.194 metrar (20.320 fet) í gær kl. 15 í snjókomu og kulda.
    Gistu í 17.200 fetum (High Camp) í nótt og ætla í 14.200 í dag.
    Þeir biðja að heilsa öllum.”

    #56723

    Nú jæja já… Ísalp síðan ekki nógu fín ha?

    En ég segi bara til lukku félagar ef þið hafið toppað og góða ferð niður.

    #56725
    0703784699
    Member

    annarri siður? og enginn linkur?

    #56726
    2809774899
    Member

    Til lukku með áfangann drengir og gangi ykkur vel.

    #56728
    Gummi St
    Participant

    Góð ábending Bjöggi, en þetta var trúlegast aðstandandi annars þeirra sem póstaði þessu á aðra síðu sem ég ætla ekki að nefna hér en síðasti stafurinn er acebook…

    -GFJ

Viewing 23 posts - 1 through 23 (of 23 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.