Botnssúlnaferðin

Home Forums Umræður Almennt Botnssúlnaferðin

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45480
    1704704009
    Member

    Botnssúlnaferðin á sunnudaginn er enn á dagskrá og alls ekki áformað að fella hana niður. Það hefur hins vegar enginn skráð sig eða tjáð sig á vefnum og því erfitt að mæla áhugann. Það væri auðvitað hrútleiðinlegt ef þessi Ísalpferð yrði kæfð í fæðingu. Vantar einhvern far? Getur einhver boðið upp á far? Ég hreinlega VEIT að menn/konur eru að spá í málin og langar til að fara í hressilega dagsferð að vetri. Leggið nú orð í belg. Líka hægt að hafa samband 821-4481 við mig. Ö.

    #48513
    1704704009
    Member

    Veðurspáin fyrir sunnudag: Sunnan 10-15 m/s og rigning, en talsvert rigning suðvestantil.
    Já, það verður þá rok og rigning, en færi maður nokkurn skapaðan hlut ef maður léti skítaveður alltaf eyðileggja fyrir sér?
    Ég er til í tuskið á sunnudag. Hvað með aðra?

    #48514
    2806763069
    Member

    Klifurhúsið er opið frá 12:00 til 16:00 um helgar. Hlakka til að sjá ykkur.

    #48515
    0704685149
    Member

    Ég hvet ykkur til að taka gönguferð í rigningunni á sunnudaginn…þá verðið þið svo miklu ánægðari þegar þið komið norður í blíðuna sem verður á Telemarkmótinu.

    Allt er hægt, skoðið þessar myndir sem eru teknar í maí síðasta vor, auðvita í rjómablíðu á Akureyri. Ath. þessi ungu drengir eru alltaf með húfur hér fyrir norðan til að fá ekki sólsting!!!

    http://www.bigjump.is/default.php?i=37&b=18,345

    Kv
    Bassi

    #48516
    kgb
    Participant

    leitt að segja það en ég slaufa ferðinni á morgun, í því veðri sem verður þá, og nota frekar þennan bjarta laugardagsmorgun til að fara í dagsferð. Þó maður fari einn. Mestan áhuga hefði ég nú samt á Botnsúluferð með Ísalp, hefði hún verið færð til dagsins í dag… Nú ef veðrið breytist þá er aldrei að vita að maður komi á morgun.

    Annars gott framtak að hafa svona ferð á dagskrá. Mættu vera fleiri svona dagsferðir eins og þessi.

    kgb

    #48517
    1704704009
    Member

    Allt í lagi Kristján og góða skemmtun. Annars er spáin fyrir morgundaginn að versna ef eitthvað er og nú segir Veðurstofan 25 m/sek í strengjum við fjöll. Smárok og rigning skaðar engan en við verðum víst að játa okkur sigraða ef það er beinlínis spáð stormi á morgun. Botnssúlur eru ekki ákjósanlegur staður í stormi. Ferðin er því í uppnámi sem stendur. Tökum síðasta veðurtékk í kvöld og athugum hvort þetta lagist eitthvað. Tilkynni ákvörðun á vefnum fyrir kl. 19 og hringi í skráða þátttakendur.

Viewing 6 posts - 1 through 6 (of 6 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.