Aðstæður

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Aðstæður

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45490
    AB
    Participant

    Fór í smá bíltúr.

    Múlafjallið er íslaust og Brynjudalur lítið skárri.
    Ekkert að gerast í Búahömrum.
    Þilið nær alls ekki saman.

    Kv.

    AB

    #50558
    1704704009
    Member

    Þá er bara að taka fram gæðinginn. Við hjónaleysin létum okkur gossa yfir Svínaskarðið um daginn. Mig minnir að augasteinarnir einir hafi sloppið við drullumeik að lokinni þessari rómantísku kvöldferð. Enda hentum við okkur út í Meðalfellsvatn til að losna við múrhúðina. Virkilega gaman að þessu. Ætlum aftur í seinna í sumar..

    #50559
    0309673729
    Participant

    Tók fram gæðinginn á Jónsmessunni og renndi mér úr Grafarvoginum upp í Fljótstungu norðan Húsafells. Mætti í árbít á tilsettum tíma. Staðfesti að ísaðstæður í og við Hvalfjörðinn eru daprar. Virkilega erfiðar síðustu brekkurnar verð ég að segja. Ætla ekki aftur seinna í sumar.

    #50560
    0703784699
    Member

    Haagen-Dazs var vel kaldur og í fínum aðstæðum, borgaði um 3 evrur f. 3 kúlur og rjóma með. Rann ljúflega niður og aldrei að vita nema íshungrið segi til sína aftur á morgun og maður grípa í skeiðina og skelli sér svo sem eina 3 kúlu leið,

    GIMP

    #50561
    0704685149
    Member

    Fínar sumarskíðsaðstæður fyrir Norðan.
    Snjórinn fer minnkandi en þó enn alveg nóg.
    Ég stefni að því að skíða í hverjum mánuði á þessu ári.

    kveðja
    Bassi

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.