Home › Forums › Umræður › Almennt › jólaskíðun og -klifur JÓLAGLÖGG › Re: Svar:jólaskíðun og -klifur JÓLAGLÖGG
18. December, 2009 at 00:34
#54915
Arnar Halldórsson
Moderator
Ég fór síðast sunnudag ásamt félaga mínum að klifra á Sólheimajökli í blautum aðstæðum. Fundum djúpan svelg (15-20 m) sem bauð upp á rúmlega lóðrétt og krefjandi klifur. Sáum svo enn girnilegri aðstæður á leiðinni niður rétt fyrir myrkur. Glæsilegt djúp svæði í jöklinum með mörgum krefjandi leiðum og áhugaverðum helli.
Ég mæti í ÍSALP skíði eða klifur á laugardaginn. Sólheimajökull fær mitt atkvæði.
Kv.
Arnar