Re: svar: Aðstæður um helgina

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Aðstæður um helgina Re: svar: Aðstæður um helgina

#50743
2003654379
Member

Fórum I Múlafjall i dag í þeim erindagjörðum að klífa Stíganda sem er í glymrandi aðstæðum.Ingvar leiddi okkur upp að hæðsta haftinu þar sem undirritaður ætlaði að spreyta sig,en ekki vildi betur til en að ég hrasaði skömmu eftir að klifrið hófst og endaði flötum fótum við hliðina á Ingvari.Sem betur fór særðist lítið annað en stoltið en þetta verður lexía um það að þetta sport er ekki áhættulaust og andartaks andvaraleysi getur orðið dýrkeypt !Annars litur vel út með helgina og ég mundi halda að Múlafjall væri ágætiskostur.

Klifurkveðja Viðar