Re: svar: 10 Tindar

Home Forums Umræður Almennt 10 Tindar Re: svar: 10 Tindar

#53015
Anonymous
Inactive

Góður listi hjá Robba en er þarna tilfinningarlegt mat eða á þetta að mæla bara flottustu og skemmtilegustu leiðirnar? Á erfiðleikagráðan eittthvað að koma inn í þetta? Mér finnst Stígandinn alls ekki eiga heima þarna þó hún sé mjög svo skemmtileg leið og einnig ef við nefnum Paradísarheimt er vart hægt að tala um Orginal leiðina því hún er mjög létt tæknilega þá væri betra að hafa Skoruna(afbrigðið lengst til hægri) ef við förum út í svoleiðs sálma. Mér finnst merkilegt að sjá engar nýjar og fallegar og erfiðar leiðir sem hafa verið frumfarnar á síðustu árum. Ég nefni eina sem var að vísu farin fyrir þónokkru það er Þráin uppi hjá Háafoss. Einnig gætu nokkrar frábærar leiðir í Kinninni komið þarna inn.
Kveðja Olli