Re: Re: Fetlalausir fetlar

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Fetlalausir fetlar Re: Re: Fetlalausir fetlar

#55903
1811843029
Member

Ég hef aldrei notað svona en hinsvegar fylgst með James nota sína naflastrengi sem eru black diamond. Þetta virðist rosa sniðugt til að byrja með, svo fara strengirnir að húkkast undir kerti, í dót á beltinu eða eitthvað þannig og þá er snilldin talsvert minni. Það er svo sem hægt að komast hjá því en þarf athygli. Var að hugsa um að fá mér svona en ákvað að nota athyglina frekar í að passa að missa ekki axirnar.

Kv.

Atli