Ljósmyndasamkeppni ÍSALP
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Þriðjudagur, 22. desember 2009 13:54



Þegar Banff fjallakvikmyndahátíðin 2007 var haldin hátíðleg var í fyrsta skipti efnt til ljósmyndasamkeppni á meðal félaga klúbbsins. Síðan hefur þetta verið árviss atburður sem hefur þróast með tímanum.
Síðustu skiptin hefur verið keppt í þremur flokkum. Flokkarnir eru ísklifur, skíði og mannlíf á fjöllum. Dómnefnd hefur iðulega verið skipuð fulltrúum úr stjórn og atvinnuljósmyndara. Síðustu tvö árin hafa vinnningsmyndirnar átt sérstakan sess í ársritinu.
Reglur síðasta árs voru eftirfarandi:
- Myndum skal skila á jpeg sniði (.jpg)
- Upplausn myndar er frjáls en hafa skal í huga að hugsanlega fer mynd á prent og því er gott að upplausn sé að minnsta kosti 2481px X 1749px.
- Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum, teikna eða bæta inn texta á myndina.
- Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Mælt er með að þátttakendur taki fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni.
- Þátttakandi tiltekur í hvaða flokk myndin á að keppa.
- Ísklifur
- Skíði
- Mannlíf á fjöllum
- Hámarksfjöldi mynda á hvern þátttakanda eru 3 myndir í hverjum flokki, samtals 9 myndir sé tekið þátt í öllum flokkum.
- Myndin skal vera tekin á þessari vetrarvertíð.