www.isalp.is
Viðburður
- Titill:
- Vidjókvöld/STEEP
- Hvenær:
-
03.12.2009 - 03.12.2009
- Hvar:
-
Félagsheimili Ísalp -
Reykjavík
- Flokkur:
-
Félagsstörf
Lýsing
Nú er loksins farið að verða doldið vetrarlegt á Fróni. Bláar tölur á veðurkortunum og jafnvel snjór hér og hvar.
Utanbrautarbandalagið efnir þess vegna til hittings.
Við ætlum að halda vidjókvöld þar sem myndin Steep verður sýnd.
Þetta er ekki alveg hefðbundin skíðamynd heldur heimildamynd um sögu svokallaðrar "big mountain" skíðamennsku. Fylgst er með skíðamönnum sem þefa uppi brattar, krefjandi, nýjar og ófarnar skíðaleiðir. Skíðamenn sem leita af hinu fullkomna augnabliki.
Meginhetjan í myndinni er Doug Coombs en hann lést nokkrum dögum eftir að tökum lauk er hann skíðaði með félaga sínum á hinu goðsagnakennda skíðasvæði La Grave í Frakklandi.
Meðal annarra þá koma fram í myndinni Shane McConkey, Seth Morrison og Ingrid Backstrom.
Hér má sjá sýnishorn af myndinni.
http://www.youtube.com/watch?v=Cr7_4LrF8As
Staður
- Hvar:
-
Félagsheimili Ísalp
- Gata:
-
Skútuvogur 1G
- Póstnúmer:
-
104
- Borg:
-
Reykjavík
- Land:
-
Lýsing
Félagsheimili ÍSALP er að Skútuvogi 1G, 104 Reykjavík. Bílastæði og inngangur er í portinu að neðan. Gengið er inn frá Barkarvogi. ÍSALP deilir húsnæði með
Klifurhúsinu.
EventList powered by schlu.net