www.isalp.is
Viðburður
- Titill:
- Myndasýning Shivling-fara
- Hvenær:
-
22.10.2009 - 22.10.2009
- Flokkur:
-
Fundir
Lýsing
Fimmtudagskvöldið 22. október munu Ísalpararnir og leiðangursfólkið, Berglind, Arnar, Gunnar, Eiríkur og Kári, sem reyndu við fjallið Shivling í Himalayafjöllnum síðastliðið haust sýna myndir úr leiðangrinum í sal Hjálparsveitar skáta í Garðabæ. Myndasýningin hefst klukkan 20:00 og er aðgangur ókeypis.
Fimmmenningarnir fóru í mánaðarlangann leiðangur til Indlands í október 2008 til að freista þess að klífa fjallið Shivling, sem er í indverska hluta Himalayajfallanna, en verkefnið fékk leiðangursstyrk Cintamani og Íslenska alpaklúbbsins árið 2008.
Shvivling er 6543 metra hátt og er oft kallað Matterhorn Indlands þar sem það þykir einstaklega glæsilegt fjall sem og hrikalegt, eftirsóknarvert verkefni hjá fjallamönnum.Leiðangursmenn komust í rúmlega 6100 metra hæð á fjallinu en þurftu þá frá að hverfa vegna aðstæðna.
Hjálparsveit skáta Garðarbæ, Bæjarbraut
22. október kl. 20:00
EventList powered by schlu.net